Skilgreining á „fullri bólusetningu“ ekki breyst – ennþá

Ertu full­bólusett? Eða þarftu örvunar­skammt til að falla undir þá skil­grein­ingu? Kjarninn leitaði svara við þessari spurningu sem farin er að brenna á mörgum Evrópu­búum.

Tæplega 100 þúsund manns á Íslandi hafa nú fengið örvunarbólusetningu.
Tæplega 100 þús­und manns á Íslandi hafa nú fengið örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Mynd: EPA

Nokkur umræða er hafin erlendis um skilgreiningu á því að vera „full­bólusett/ur“ gegn COVID-19. Ertu full­bólusett með tveimur sprautum eða þegar þú hefur fengið örvunar­skammt?

Samkvæmt upplýsingum frá Embætti land­læknis hefur skilgreiningin ekki breyst – að minnsta kosti ennþá. Þannig að manneskja sem hefur lokið bólu­setningu með tveimur sprautum með Pfizer, svo dæmi sé tekið, er talin full­bólusett. Örvunar­bólusetning er einmitt það, segir í svari embættisins, örvun ofan á fulla bólu­setningu.

„Hins vegar er það svo að það samevrópska kerfi sem notað er um bólu­setningar­passa (t.d. vegna ferðlaga) byggir á skilgreiningu sem aðeins náði til eins árs,“ segir í svari embættisins við fyrir­spurn Kjarnans. „Því gæti farið svo að þeirri skilgreiningu verði breytt. Við höfum hins vegar ekki heyrt af slíkum hugmyndum.“

Faraldur COVID-19 hefur náð miklum hæðum í Evrópu ennþá einu sinni og hertar aðgerðir boðaðar víða. Stjórn­völd í Austur­ríki hafa til dæmis þegar gripið til útgöngu­banns (lockdown) og hafa auk þess ákveðið að frá og með febrúar á næsta ári verði allir skyldaðir til bólu­setningar.

Örvunar­bólusetning, þ.e. að gefa þriðja skammtinn af bóluefni, er hafin í mörgum Evrópu­ríkjum og litið er svo á að hún gæti orðið leiðin út úr faraldrinum.

En þetta gæti þýtt að skilgreining á „fullri bólu­setningu“ ætti eftir að breytast. Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, sagði í síðustu viku að tvær sprautur væru ekki lengur nægjanlegar til að ná fullri bólu­setningu. Til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur í landinu á ný, sem myndi hafa hertar aðgerðir í för með sér, væri þriðji skammturinn – örvunar­skammturinn – nauðsyn­legur. „Með tímanum dregur úr vernd tveggja skammta,“ sagði hann á blaðamanna­fundi fyrir um viku. Til stendur að gefa um 10 milljónum Breta örvunar­bólu­setningu fyrir jól. Byrjað var að gefa fólki yfir fimmtugu og viðkvæmum hópum slíka sprautu í september.

Samkvæmt frétt AFP hafa um 3,7 prósent Evrópubúa fengið örvunar­skammt. Ísland leiðir örvunar­bólu­setningar álfunnar, segir enn fremur í fréttinni. Samkvæmt því sem fram kemur á covid.is hafa tæplega 100 þúsund einstaklingar fengið örvunar- eða viðbótar­skammt af bóluefni. Ákveðið var nýverið að öllum sextán ára og eldri stæði slíkt til boða um 5-6 mánuðum eftir að önnur sprauta var gefin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár