Trump smitaður: „Ég geng ekki með grímur eins og hann“

Donald Trump Bandaríkja­forseti gerði lítið úr hættunni af COVID-19 farsóttinni og mælti með óhefð­bundum lækningum. Hann hefur nú greinst með veiruna og er í áhættu­flokki vegna aldurs. Óttast er að hann hafi smitað Joe Biden.

Donald Trump og Melania Trump
Donald Trump og Melania Trump For­seta­hjónin hafa greinst með COVID-19. Mynd: Shutterstock

Donald Trump hefur ítrekað gert lítið úr COVID-19 farsóttinni opinber­lega og virkni þess að ganga með grímu til að draga úr smiti milli fólks. Trump hefur nú tilkynnt að hann og eiginkona hans Melania Trump hafi greinst með veiruna.

Óttast er að Trump, sem hefur ítrekað gert lítið úr Joe Biden fyrir að nota grímur, hafi smitað Biden á kapp­ræðunum aðfarar­nótt miðvikudags. 

Gerði lítið úr grímunotkun

Trump-hjónin fóru í próf eftir að í ljós kom að Hope Hicks, ráðgjafi forsetans, hefði greinst með veiruna. Hún ferðaðist undan­farið ásamt forsetanum og fjölda annarra hátt­settra innan raða hans í flugvél embættisins, Air Force One. Mike Pence vara­forseti hefur farið í próf, en hann reyndist ekki veikur.

Þegar smit greindust fyrst í Banda­ríkjunum í upphafi árs sagði Trump að farsóttin yrði ekki ógn þar í landi. Hann neitaði lengi vel að láta ljósmynda sig með grímu og gerði lítið úr Joseph Biden, mótframbjóðanda sínum, fyrir að ganga með grímu. Í kappræðum milli þeirra á miðvikudag sagði hann að Dr. Anthony Fauci, sem leiðir baráttuna gegn farsóttinni í Banda­ríkjunum, hefði upphaf­lega sagt grímur vera gagns­lausar, en hafi síðar skipt um skoðun. Fauci hefur neitað þessu og sagst frá upphafi hafa grátbeðið fólk um að ganga með grímur.

Sagðist ekki ætla að vera með grímu í apríl

New York Times tók saman ýmis ummæli sem Trump hefur látið falla um grímu­notkun á árinu. 3. apríl sagði hann að hverjum og einum væri í sjálfs vald sett að fylgja sóttvarnar­leið­beiningum um grímu­notkun. „Þú þarft ekki að gera það,“ sagði hann. „Þeir stinga upp á því tíma­bundið, en þetta er ekki skylda. Ég held ekki að ég muni gera það.“

19. júlí var hann í viðtali hjá Fox News. „Ég er ekki sammála þeirri full­yrðingu að ef allir væru með grímur mundi þetta allt hverfa,“ sagði hann.

„Ég geng ekki með grímur eins og hann“

Í kapp­ræðunum á miðvikudag sagði hann að grímur væru í lagi. „Þegar þarf, þá geng ég með grímur. Ég geng ekki með grímur eins og hann,“ sagði hann og vísaði til Biden. „Í hvert sinn sem þú sérð hann, þá er hann með grímu. Hann gæti verið 200 fetum í burtu og hann mætir með stærstu grímu sem ég hef nokkru sinni séð.“

Mælti með óhefðbundnum lækningum

Hvað varðar COVID-19 farsóttina sjálfa sagði Trump 22. janúar að hann hefði engar áhyggjur. „Þetta er ein manneskja sem kemur frá Kína og við höfum stjórn á þessu öllu. Þetta verður allt í lagi.“

14. febrúar gerði hann áfram lítið úr hættunni. „Það er kenning um að í apríl þegar hlýnar, sögulega séð hefur það dugað til að drepa veiruna,“ sagði hann.

„Áhættan gagnvart bandarískum almenningi er áfram mjög lítil,“ bætti hann við 26. febrúar. Degi síðar sagði hann farsóttina munu hverfa. „Einn daginn, eins og fyrir krafta­verk, mun hún hverfa.“

„Einn daginn, eins og krafta­verk, mun hún hverfa“

Blaða­maðurinn Bob Woodward hefur einnig uppljóstrað um það að í febrúar hafi Trump vitað um hversu hættuleg veiran er, en viljandi haldið því frá almenningi. Þrátt fyrir þá vitneskju stakk Trump reglulega upp á lækningum gegn sjúk­dómnum, nefndi að fólk gæti sprautað sig með sótt­hreinsandi efni beint í æð eða tekið malaríu­lyfið hydroxychloroquine gegn veirunni. Full­yrðingum hans var hafnað af heilbrigðis­starfsfólki.

Yfir 200 þúsund Bandaríkja­menn hafa nú látist vegna COVID-19. CNN segir Trump vera í sérstökum áhættu­flokki vegna aldurs síns, en hann er 74 ára, og vegna þyngdar. Fólk á hans aldri er fimm sinnum líklegra til að vera lagt inn á sjúkrahús vegna veikindanna en 18 til 29 ára fólk og 90 sinnum líklegra til að láta lífið. Karlmenn eru einnig líklegri en konur til að veikjast alvarlega, en ekki er vitað hvort Trump glími við önnur heilsufarsleg vandamál sem gætu haft áhrif á framvindu sjúk­dómsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár