Clinton fékk nærri þremur milljónum fleiri atkvæði en Trump

Donald Trump fékk stuðning 306 kjörmanna af 538 og vann því með yfir­burðum. Clinton fékk samt mun fleiri atkvæði.

Hillary Clinton hlaut samtals 65.844.954 atkvæði í forseta­kosningunum 8. nóvember síðastliðinn en Donald J. Trump 62.979.879, að því er fram kom á vef CNN í gærkvöldi. Lá þá loka­niðurstaðan úr öllum ríkjum Banda­ríkjanna fyrir. Um 2,1 prósentu­stigs munur er því á fylgi þeirra á landsvísu, Hillary í hag, en Trump hafði þó yfirburða­sigur sé horft til fjölda kjörmanna. Hillary fékk 48,2 prósent fylgi en Trump 46,1. 

Fram­bjóðandi í Banda­ríkjunum hefur aldrei fengið svo mörg atkvæði en ekki orðið forseti, og er niður­staðan að því leytinu til söguleg. Kjörmenn staðfestu Trump sem rétt­kjörinn forseta á mánudags­kvöld og voru þar 306 kjörmenn af 538 sem völdu hann. 

Kosning Trumps er sú versta sem sigurvegari í forseta­kosningunum hefur fengið, frá því Rutherford B. Hayes var kjörinn forseti árið 1876, númer nítján í röð Bandaríkja­forseta. 

Trump hefur sjálfur sagt að hann hafi unnið með „yfir­burðum“ og að heildar­atkvæðin skipti ekki máli. Það séu kjör­mennirnir sem skipti máli, og þar hafi hann verið með yfirburða­stöðu. Þá sagði hann á Twitter að hann hefði líklega líka unnið heildar­atkvæða­kosninguna en barátta hans hafði þá verið öðruvísi, og úrslitin eftir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár