Pútín sagður hafa fyrirskipað tölvuárásir á framboð Hillary Clinton

Forseti Rússlandi vildi að tölvu­árásum yrði beitt til að hjálpa Donald Trump að verða forseti, að því er segir í skýrslum leyni­þjónustu­stofnanna Banda­ríkjanna.

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, fyrir­skipaði herferð gegn kosninga­framboði Hillary Clinton með innbrotum í tölvu­kerfi og áhrifum á fjölmiðla, og var meðal annars fölskum fréttum beitt til að hafa áhrif á opinbera umræðu, og voru sérstakar aðferði tölvu­hakkara notaðar til þess að tryggja góða dreifingu þeirra.

Frá þessu er greint í skýrslu bandarískra leyni­þjónustu­stofnanna sem gerð var opinber í gærkvöldi. Eftir því sem á leið á herferð Rússa var byrjað að beita aðferðum, í gegnum tölvu­árásir, til að ýta undir góða niður­stöðu Donalds Trump í kosningunum.

Markmið Rússa hafi verið að grafa undan trúverðug­leika bandaríska kosninga­kerfisins, ófrægja Clinton og draga úr kjörþokka hennar, segir í skýrslunni.

Er sérstak­lega vikið að því að Pútín sé æfur vegna lyfja­hneykslis rússneskra íþrótta­manna og einnig að gögn um viðskipti trúnaðar­manna hans, sem fram koma í Panama­skjölunum, hafi komist í dags­ljósið. Þá er hann sagður kenna Hillary um að hafa hvatt til mikilla mótmæla gegn stjórn hans á árunum 2011 og 2012.

Aðrar þjóðir eru varaðar við því að Rússar eigi mögulega eftir að reyna að hafa áhrif á kosningar þeirra. Reynsla þeirra í Banda­ríkjunum hafi gefið það góða raun. Bæði Frakkar og Þjóð­verjar velja sér nýtt þing og nýja forystu í ár.

Á þeim 25 síðum sem gerðar voru opinberar í skýrslunni er nokkrum hlutum haldið frá opinberun, og er það sérstak­lega merkt í skýrslunni. Á þriðgja tuga blaðsíðna í skýrslunni er enn haldið leyndum, en þær voru sýndar Barack Obama, forseta, og Donald Trump, verðandi forseta, í dag.

Trump segir í samtali við frétta­menn að hann hafi lært mikið af fundinum með yfir­mönnum leyni­þjónusta Banda­ríkjanna, en hann hefur til þessa haldið því fram að ekkert hafi beinlínis komið fram sem styðji ásakanir um að Rússar hafi haft afskipti af

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár