Tröllvaxin auglýsing H&M í gangveginum á Lækjartorgi

“See you at Smáralind!” stendur á stóru auglýsinga­skilti sem stillt var upp á Lækjar­torgi.

Risavaxið auglýsinga­skilti fyrir H&M sem komið var fyrir á Lækjar­torgi í gær hefur vakið athygli og umtal. 

Samkvæmt reglum Reykja­víkurborgar ber að sækja um leyfi til afnota af borgar­landi, en til þess teljast allar götur, gangstéttar, stígar, opin svæði, almennings­garðar og torg. Þegar Stundin spurðist fyrir um skiltið í gær komu starfs­menn borgarinnar af fjöllum og könnuðust ekki við að veitt hefði verið leyfi fyrir auglýsingunni sem blasir við í gangveginum á Lækjar­torgi í formi stórs innkaupa­poka með enskri áletrun: “Grand Opening: See you at Smáralind! August 26”.

Síðar um daginn fékk Stundin þau svör að skiltið hefði verið sett upp í leyfis­leysi og að það yrði fjarlægt við fyrsta tækifæri.

Nokkru eftir að Stundin greindi frá því tók Vísir.is viðtal við Guðmund Vigni Óskarsson, verkefna­stjóra leyfis­veitinga borgar­lands, sem fullyrti hins vegar að H&M hefði sótt um tilskilin leyfi fyrir auglýsingunni og að hún fengi að standa fram yfir mánaðamót. Þetta stangast á við upplýsingar sem Stundin fékk frá æðstu stjórn­sýslu Reykja­víkurborgar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. 

Fréttin var uppfærð eftir birtingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár