Trump dregur Bandaríkin út úr Íran-samkomulaginu

Donald Trump sagði fyrir stundu að fjöl­þjóðlegt kjarnorku­samkomulag við Íran, frá 2015, hafi verið stór mistök. Hann kallaði Íran ógnar­stjórn.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti fyr­ir stundu að hann ætli að draga Banda­rík­in úr kjarn­orku­samkomu­laginu við Írani. Hann sagði samkomu­lagið, sem var gert árið 2015 í tíð Barack Obama, hafa verið stór mistök sem hefðu gert Íran mögulegt að styrkja hryðjuverka­starfsemi og vinna áfram leynilega að uppbyggingu kjarnorku­vopna.

Hann vitnaði til gagna frá Ísraels­stjórn sem sýndu með óyggjandi hætti að Íran væri að brjóta gegn samkomu­laginu.

Samkomu­lagið er frá árinu 2015 en Banda­ríkin, Frakkland, Bretland, Rússland, Kína, Þýskaland og Evrópu­sambandið stóðu að samkomu­laginu við Íran, sem þvingaði Íranstjórn til að takmarka kjarnorku­vopna­framleiðslu sína, og þá voru efnahags­þvinganir gagnvart Íran felldar niður.

Þetta opnaði meðal annars á mögu­leikann á því fyrir Íran að selja olíu á heims­markaði, en alþjóðlegar efnahags­þvinganir höfðu gert það að verkum, að þau viðskipti voru landinu erfið.

Trump sagði að það væri hans markmið, að færa Íran aftur í hendur fólksins í landinu. Það ætti að ráða ferðinni, en ekki ógnar­stjórnin sem hefði haldið um valda­þræðina alltof lengi.

Trump sagðist enn fremur ætla að boða harðar efnahagslegar þvinganir gagnvart Íran, og þær yrðu „þær hörðustu, nokkru sinni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár