"Ég held að þjóðin skilji að við þurfum að fá kjarabætur"

Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna­félags Íslands, var gestur Sigmars Guðmunds­sonar í Kast­ljósinu á RÚV í kvöld. Eins og kunnugt er hófust verkfalls­aðgerðir lækna á miðnætti, en þetta er í fyrsta skipti sem læknar fara í verkfall hér á landi.

Læknar hafa ekki viljað kynna launa­kröfur sínar opinber­lega, en talið er að þær hljóði upp á ríflega 30 prósenta launa­hækkun að lágmarki. "Við erum að tala um verulegar kjara­bætur, ég get staðfest það, en við höfum ekki talið skynsamlegt að fara út í karp um prósentur og einstaka tölur í fjöl­miðlum," sagði Þorbjörn aðspurður í Kastljósi um launa­kröfur lækna.

Þorbjörn segir lækna finna fyrir stuðningi og meðbyr frá almenningi. "Ég held að þjóðin skilji það að læknar þurfa að fá kjarabót." Hann segir verulegar kjara­bætur verða að koma til til að sporna við atgervis­flótta lækna. "Þetta snýst um framtíð læknis­þjónustu á Íslandi. Okkur finnst krafa okkar sanngjörn til að fyrir­byggja upplausn í heilbrigðis­kerfinu, ef fólk kemur ekki aftur heim til að vinna."

Launa­kröfur lækna eru ekki síst til að trekkja frekar unga lækna aftur heim til Íslands eftir læknanám erlendis. "Við verðum að fá nýja þekkingu til landsins. Við höfum þegar glatað einni kynslóð, þeir sem eru búnir að vera úti lengur en í tíu ár eru mjög líklegir til að koma ekki aftur heim."

Aðspurður um viðbrögð lækna ef verkfall þeirra verður stöðvað með laga­setningu, svaraði Þorbjörn: "Ég held að það væri óheilla­skref að fara þá leið, læknar yrðu mjög óhressir með það."

Yfir­standandi verkfall nær til heilbrigðis­stofnana á lands­byggðinni auk heilsu­gæslu á höfuð­borgar­svæðinu og hluta Land­spítala. Á miðvikudag hefst svo annað tveggja daga verkfall og fleiri eru boðuð. Hátt í átta hundruð læknar munu taka þátt í verkfalls­aðgerðunum.

Kjara­viðræður lækna við ríkið eru í hnút, en næsti fundur í kjara­deilunni hefur verið boðaður hjá Ríkis­sátta­semjara á miðvikudaginn. Lækna­félaginu hafa borist stuðnings­yfir­lýsingar í dag frá Félagi íslenskra hjúkrunar­fræðinga, Félagi lífeinda­fræðinga, frá Ljósmæðra­félagi Íslands og frá Sálfræðinga­félagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár