Hillary: Tölvuárásir Rússa voru árás á Bandaríkin

Hillary Clinton segir að tölvu­árásir Rússa séu með alvarlegri árásum sem Banda­ríkin hafi orðið fyrir í seinni tíð. Það megi ekki leyfa Pútín að komast upp þær.

Hillary Clinton, fram­bjóðandi Demókrata í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum í nóvember, segir að tölvu­árásir rússneskra tölvu­hakkara hafi verið árás á Banda­ríkin. 

Í frétt breska ríkis­útvarpsinsBBC segir að Hillary hafi tjáð sig um tölvu­árásirnar í ræðu fyrir fram stuðnings­menn sína í New York. Hún hafi þar sagt að Vladímir Pútín, forseti Rússlands, hafi verið beinn þátt­takandi í tölvu­árásum Rússa í aðdrag­anda kosninga, meðal annars þegar tölvu­póstar John Pedista, kosningastjór Hillary, voru gerðir opinberir á vef Wikileaks. Þá hafi tölvu­árásir í aðdrag­anda lands­fundar Repúblikana miðað að því að grafa undan andstæðingum Donalds Trumps með það að markmiði að hann næði kjöri sem forseti að lokum. 

Líkt og gerðist síðan 8. nóvember þrátt fyrir að Hillary hafi fengið meira 2,5 milljónum fleiri atkvæði á landsvísu. 

Barack Obama sagði á blaðamanna­fundi í Hvíta húsinu í gær að Repúblikanar væru ekki að átta sig á alvarleika málsins, en bæði alríkis­lögreglan FBI og leyni­þjónustan CIA eru nú búnar að staðfesta tölvu­árásir Rússa í aðdrag­anda kosninganna. 

Obama sagði að Ronald Reagan, sem var forseti Banda­ríkjanna á árunum 1981 til 1989, myndi vafalítið velta sér við í gröfinni, vegna þessarar afstöðu Repúblikana. Hann sagði að tölvu­árásirnar væru grafal­varlegar og að Banda­ríkin myndu svara fyrir sig þegar það hentaði þeim að gera það. 

Jafnframt staðfesti hann á fundinum að hann hefði komið þeim skila­boðum til Pútíns í september síðastliðnum að hann yrði að hætta þessu háttalagi, eða að koma í veg fyrir það. 

Árásir Rússa eru nú til rann­sóknar hjá FBI og CIA og verður loka­skýrslu um þær skilað innan tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár