Kvartanir vegna Stefáns hjá Storytel ná að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár aftur í tímann

Stefán Hjörleifsson, framkvæmda­stjóri Storytel á Íslandi, lét af störfum hjá fyrir­tækinu á Íslandi eftir að þrjár konur kvörtuðu undan háttsemi hans til móður­félagsins í Stokk­hólmi. Kvartanirnar snerust um óviðeigandi háttsemi af kynferðis­legum toga. Starfs­menn Storytel á Íslandi hafa hins vegar áður kvartað yfir háttalagi Stefáns til Svíþjóðar.

Kvartanir ná lengra aftur í tímann
Kvart­anir ná lengra aftur í tím­ann Kvart­anir vegna stjórn­enda­stíls Stefáns Hjör­leifs­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Storytel, ná að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár aftur í tím­ann.

Starfs­menn hljóða­bóka­fyrir­tækisins Storytel á Íslandi höfðu áður kvartað yfir háttsemi Stefáns Hjörleifs­sonar, fyrr­verandi framkvæmda­stjóra fyrir­tækisins, til móður­félagsins í Stokk­hólmi. Þetta gerðist meðal annars fyrir einu og hálfu ári síðan. Ein af þessum kvörtunum snerist ekki um meinta óviðeigandi háttsemi í kynferðis­málum heldur um stjórnenda­stíl Stefáns.

Bréfa­skipti starfs­manns fyrir­tækisins og starfs­manns hjá Storytel í Svíþjóð áttu sér stað í mars á síðasta ári og var meðal annars rætt um stjórnenda­stíl Stefáns í þeim og spurt var að því af hverju starfsmanna­velta hjá fyrir­tækinu væri svo mikil. Umræddur starfs­maður, sem vinnur ekki lengur fyrir Storytel, vill ekki koma fram undir nafni að svo stöddu.  

Storytel á Íslandi er í eigu sænska fyrir­tækisins Storytel AB sem er alþjóðlegt hljóðbóka­fyrirtæki með starfsemi í mörgum löndum. Fyrir­tækið hóf starfsemi hér á landi með látum árið 2018 og er tekju­hæsta bóka­fyrirtæki landsins. Fyrir­tækið er bæði endur­söluaðili á bókum annarra forlaga á hljóðbóka­formi og gefur …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár