Rússland hagnast á meðan hætta á olíuskorti eykst

Rússland tvöfaldaði tekjur sínar af olíu­útflutningi í síðasta mánuði eftir að Banda­ríkin slökuðu á viðskipta­þvingunum vegna stríðsins í Úkraínu. Olíu­skortur neyðir lönd og atvinnu­greinar til þess að leita annarra leiða. Áhrifa gætir einnig á Íslandi.

Alþjóð­legir olíu­markaðir eru nú í mikilli óvissu þar sem átök í Miðausturlöndum, breytingar á viðskipta­þvingunum og aðgerðir stórvelda hafa víðtæk áhrif á framboð og eftir­spurn. Ný gögn benda til þess að tekjur sumra ríkja aukist hratt á meðan hætta á alvarlegum samdrætti og olíu­sjokki fer vaxandi.

Samkvæmt Alþjóð­legu orkumála­stofnuninni (IEA) nær tvöfaldaði Rússland tekjur sínar af olíu­útflutningi í mars. Tekjurnar námu um 19 milljörðum dala, eftir að útflutningur jókst í 7,1 milljón tunnur á dag. Aukningin kemur í kjölfar þess að Banda­ríkin slökuðu tíma­bundið á hluta viðskipta­þvingana vegna stríðsins í Úkraínu, meðal annars með því að heimila sölu á olíu sem þegar var á leið til kaupenda.

Hafnarbann á írönsk hafnarsvæði

Á sama tíma hefur ákvörðun stjórn­valda í Washington um að setja hafnbann á írönsk hafnar­svæði við Hormuz-sund vakið miklar áhyggjur. Sundið er ein mikil­vægasta siglinga­leið heims og um fimmtungur allrar olíu fer þar um. Aðgerðin er talin geta raskað framboði verulega, sérstak­lega til Asíu, þar sem Íran hefur áfram verið stór birgir þrátt fyrir átökin.

Íran hefur hingað til haldið uppi stöðugu flæði hráolíu, meðal annars með svokölluðum „skugga­flota“ – neti eldri skipa sem starfa í mikilli leynd til að komast hjá refsiaðgerðum. Sérfræðingar segja þetta kerfi hafa reynst ótrúlega þraut­seigt, jafnvel í miðju stríði, og að erfitt verði að stöðva það án frekari stig­mögnunar átaka.

Hafnbannið hafði áhrif á markaði

Hafn­bannið hefur þegar haft áhrif á markaði. Olíuverð hækkaði um átta prósent og fór yfir 100 dali á tunnu skömmu eftir að það var tilkynnt. Kína, stærsti kaupandi íranskrar olíu, hefur gagnrýnt aðgerðirnar harðlega og kallað þær hættulegar.

Þrátt fyrir að framboð sé undir þrýstingi bendir IEA á að eftir­spurn eftir olíu gæti nú dregist saman í fyrsta sinn frá því COVID-faraldurinn hófst. Hækkandi verð og truflanir á flutningum neyða ríki og atvinnu­greinar til að draga úr notkun, og gert er ráð fyrir að eftir­spurn minnki verulega á næstu mánuðum.

Stofnunin spáir því að eftir­spurn hafi þegar dregist saman um hundruð þúsunda tunna á dag í mars og muni minnka enn frekar í apríl. Í sviðsmynd þar sem Hormuz-sundið helst lokað gæti samdrátturinn orðið allt að fimm milljónir tunna á dag það sem eftir er ársins.

Olíuverð hefur nær tvöfaldast 

Framboð hefur einnig orðið fyrir miklu höggi. Í mars hurfu yfir 360 milljón tunnur af markaðnum vegna átaka og skemmda á innviðum og búist er við enn meiri skerðingu í apríl. Heildar­framboð féll niður í um 97 milljón tunnur á dag, sem er verulegur samdráttur á skömmum tíma.

Olíuverð hefur nær tvöfaldast frá því stríðið hófst og áhrifin eru farin að skila sér í hærra verði á eldsneyti og öðrum afurðum. Ríki hafa þegar gripið til ráðstafana, meðal annars með því að ganga á birgðir sínar, en birgðir heimsins minnkuðu um tugmilljónir tunna í mars einum saman.

Þrátt fyrir alvarlega stöðu telja sumir greiningar­aðilar að markaðir geri ráð fyrir að átökunum ljúki áður en langt um líður. Vonir standa til þess að viðræður leiði til vopnahlés og að siglinga­leiðir opnist á ný, sem gæti dregið úr þrýstingi á markaði.

Brutust í gegnum hafnarbannið 

Í gær fóru minnst þrjú skip frá írönskum höfnum yfir Hormuz-sundið þrátt fyrir hafnbann Banda­ríkjanna, samkvæmt gögnum um skipa­umferð sem birtust fyrr í dag. 

Eitt skipið var skráð í Líberíu og fór yfir sundið eftir að hafa losað um 74 þúsund tonn af maís í íranskri höfn. Annað var olíuflutningaskrip sem skráð er á Kómoreyjum og var hlaðið metanóli.  

Þá fór kínverskt olíu­flutninga­skip, Rich Starry, einnig yfir sundið að næturlagi, á leið með metanól til Óman. Er siglingin túlkuð sem prófraun á hafnar­bann Banda­ríkjanna. Talsmaður kínverska utan­ríkis­ráðuneytisins, Guo Jiakun, hefur sagt að hafnar­bannið sé „hættulegt og ábyrgðar­laust“. Skipið er á lista Banda­ríkjanna yfir skip sem sæta refsiaðgerðum vegna tengsla við Íran. 

Áhrif á íslenskan markað

Áfram ríkir þó mikil óvissa. Ef átökin dragast á langinn gæti heims­búskapurinn staðið frammi fyrir einni mestu röskun á orku­mörkuðum í sögunni, með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu, hagvöxt og lífskjör um allan heim.

Íslendingar kaupa olíu frá Noregi og enginn skortur er á olíu þaðan. Verðið ræðst hins vegar af heims­markaðs­verði. Íslenskir neytendur hafa fundið fyrir því að bensín­verð hefur hækkað frá því í byrjun mars um 30 krónur á líterinn að meðaltali. Þá hefur verð á þotu­eldsneyti nærri tvöfaldast, sem endur­speglast í hærra verði á flugmiðum. Frétta­stofa RÚV greindi einnig frá því fyrir helgi að birgjar vara við skorti á smurolíu. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár