Skatturinn fékk 50 milljónir til að bæta upp tap vegna gjaldfrjálsra ársreikninga

Ársreikn­ingar hafa verið aðgengi­legir almenningi án greiðslu frá byrjun síðasta árs. Áður seldi Skatturinn reikningana til miðlara eða þeirra sem vildu ljósrit af þeim. Fjár­laganefnd ákvað að bæta stofnuninni upp tap á sértekjum vegna þessa.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, er formaður fjárlaganefndar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Á milli umræðna um fjár­laga­frumvarp ársins 2022 á Alþingi ákvað meirihluta fjár­laganefndar að gera tillögu um að hækka framlag til Skattsins um 50 milljónir króna til að bæta stofnuninni það tap sem hún varð fyrir þegar ársreikninga­skrá var gerð gjald­frjáls.

Kjarninn greindi frá því í nóvember að áætlaður tekju­missir stofnunarinnar vegna þessa sé um 54,5 milljónir króna á ári. Í meirihluta­áliti fjár­laganefndar segir að þá eigi hins vegar eftir að taka tillit til þess sparnaðar sem myndast vegna þess að ekki þarf lengur að ljósrita ársreikninga. „Tekjur Skattsins árið 2019 skiptust í 49 m.kr. vegna sölu ársreikninga til miðlara og 5 m.kr. vegna ljós­ritaðra ársreikninga. Tekjurnar voru því að mestu vegna sölu á ársreikningum til miðlara og miðaðist við verð fyrir hvern ársreikning. Ekki var um beina skönnun að ræða heldur fengu miðlarar aðgengi að skránni og voru rukkaðir fyrir hvern ársreikning sem þeir nálguðust. Tekjurnar af þessu voru nýttar til að viðhalda og sinna nauðsyn­legu eftirliti með ársreikninga­skránni sjálfri sem í raun er hluti af þjónustunni.“

Í febr­úar 2020 voru kynnt drög að frum­varpi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem í fólst meðal ann­ars að árs­­reikn­ingar og sam­­stæð­u­­reikn­ingar allra félaga sem skila árs­­reikn­ingi sínum til árs­­reikn­inga­­skrár yrðu aðgeng­i­­legir almenn­ingi og fjöl­miðlum að kostn­að­­ar­­lausu á opin­beru vef­­svæði. Frum­varpið var svo sam­þykkt 29. júní 2020. Mark­mið breyt­ing­anna var að auka traust á og tryggja gagn­sæi í upp­lýs­inga­gjöf fyr­ir­tækja sem almennt má telja að séu þjóð­hags­lega mik­il­væg og varða hags­muni almenn­ings. Einnig tengd­ist frum­varpið aðgerðum á sviði kenni­tölu­flakks.

Frá byrjun árs 2021 hafa árs­reikn­ingar félaga svo verið aðgengi­legir án end­ur­gjalds á heima­síðu Skatts­ins. Hægt er að nálg­­ast alla árs­­reikn­inga í fyr­ir­tækja­­skrá Skatts­ins ­með því að smella á körfu við hlið­ina á árs­­reikn­ingi val­ins félags­. Sú breyt­ing hefur leitt til þess að Creditinfo, stærsta einka­fyr­ir­tækið á þeim mark­aði sem seldi upp­lýs­ingar úr árs­reikn­inga­skrá, hætti að rukka fyrir skönnuð frum­rit af árs­reikn­ingum í febr­úar 2021.

Töldu gjald­frjálsan aðgang kippa fót­unum undan rekstr­inum

Frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar frá því í fyrra var ekki það fyrsta sem lagt hefur verið fram í þeim til­gangi að veita gjald­frjálst aðgengi að árs­reikn­ing­um. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, flutti frum­varp um afnám gjald­­­töku fyrir aðgang að árs­­­reikn­ingum í sept­­­em­ber árið 2017 og svo aftur í des­em­ber sama ár. Það frum­varp fór í fyrstu umræðu í efna­hags- og við­­­skipta­­­nefnd sem kall­aði eftir umsögnum um mál­ið, en rataði svo aldrei það­­­an.

Creditinfo mót­mælti þá frum­varp­inu í umsögn og sagði að upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingum væru fyrst og fremst nýttar af atvinn­u­líf­inu. Því væri eðli­­­legt að fólk og fyr­ir­tæki greiði fyrir þær í stað þess að „al­­­mannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstur skránna.“

Emb­ætti rík­­­is­skatt­­­stjóra, sem nú er hluti af Skatt­in­um, skrif­aði einnig umsögn um frum­varpið og sagði það kippa fótum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeyp­­­is.

Rík­­­­is­skatt­­­­stjóri sagði í umsögn sinni að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar næðu fram að ganga þá væri æski­­­­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­­­­gerð um afmörkun þeirra upp­­­­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­­­­kvæmd hins raf­­­­ræna aðgeng­­­­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­­­­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­­­­lýs­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár