Veita Bretlandi frest til útgöngu til 31. janúar 2020

Evr­ópu­sam­bandið hefur veitt Bret­landi frest til útgöngu til 31. jan­úar 2020. Áður stóð til að Bret­ar myndu yf­ir­gefa sam­bandið þann 31. októ­ber næst­kom­andi.

Full­trúar Evr­ópu­sam­bands­ríkja sam­þykktu á fundi í Brussel í morgun að veita Bretum frest til 31. jan­úar 2010 til ganga út úr Evr­ópu­sam­band­inu. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, greindi frá þessu á Twitter í morgun.

Áður hafði rík­is­stjórn Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, stefnt að útgöngu eigi síðar en 31. októ­ber, en vegna þess að breska þingið sam­þykkti ekki tíma­á­ætlun sem hann hafði lagt fram, fyrir umræður um samn­ing um útgöngu, þá varð ljóst að frek­ari frest þyrfti.

Johnson sendi beiðni um frest í síð­ustu viku og hafa full­trúar Evr­ópu­sam­bands­ins nú sam­þykkt að veita Bret­landi þriggja mán­aða frest, líkt og kom fram hér fyrir ofan. Bretar geta þó gengið fyrr úr sam­band­inu ef breska þingið sam­þykkir útgöngu­samn­ing fyrir þann tíma.

Johnson mun jafn­framt leggja það til á þingi í dag að boðað verði til þing­kosn­inga þann 12. des­em­ber næst­kom­andi. Hann hefur farið fram á að stjórn­ar­and­stæð­ingar styðji til­lög­una við litlar und­ir­tektir leið­toga Verka­manna­flokks­ins, Jeremys Corbyns, .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár