Breytilegir óverðtryggðir vextir upp í 4,15 prósent hjá Íslandsbanka

Allir stóru bankarnir þrír hafa nú tilkynnt um vaxta­breytingar eftir síðustu vaxta­hækkun Seðla­bankans. Íslands­banki var síðastur til að tilkynna breytingar og hækkar breyti­lega vexti minna en bæði Lands­bankinn og Arion banki gerðu í vikunni.

Íslandsbanki var síðastur stóru bankanna þriggja til að tilkynna um vaxtabreytingar.
Íslands­banki var síð­astur stóru bank­anna þriggja til að til­kynna um vaxta­breyt­ingar. Mynd: Íslandsbanki

Íslands­banki tilkynnti í dag breytingar á vöxtum bankans í kjölfar vaxta­ákvörðunar Seðla­bankans. Allir stóru viðskipta­bankarnir þrír hafa nú tilkynnt um vaxta­breytingar í kjölfar 0,5 prósentu­stiga hækkunar á megin­vöxtum Seðla­bankans.

Breyti­legir vextir óverðtryggðra húsnæðis­lána hjá Íslands­banka hækka um 0,20 prósentu­stig og verða þegar þessar breytingar hafa tekið gildi 4,15 prósent. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðis­lána til 3 ára hækka einnig um 0,20 prósentu­stig, en fastir vextir slíkra lána til 5 ára haldast óbreyttir í 5,5 prósentum.

Minni hækkun breytilegra vaxta hjá Íslandsbanka

Arion banki og Lands­bankinn tilkynntu um vaxta­hækkanir fyrr í vikunni. Bankarnir tveir hækkuðu breyti­lega vexti óverðtryggðra húsnæðis­lána meira en Íslands­banki gerir nú, eða um 0,4 og 0,35 prósentu­stig.

Þessir vextir hjá Arion banka verða 4,29 prósent og hjá Lands­bankanum 4,20 prósent, en verða sem áður segir 4,15 prósent hjá Íslands­banka, sem var síðastur stóru bankanna til að kynna vaxta­breytingar sínar.

Íslands­banki tilkynnir einnig í dag að fastir vextir verð­tryggðra húsnæðis­lána með vaxta­endurskoðun komi til með að lækka um 0,45 prósentu­stig um mánaða­mótin.

Hækkar útgjöld heim­ila strax

Ljóst er að þessi hækkun á vöxtum stóru bankanna mun bíta í buddu lands­­manna. Stóru bank­­arnir þrír hafa sópað til sín íbúða­lánum frá síð­­asta vori sam­hliða því að hús­næð­is­verð hefur hækkað skarpt og upp­­hæðir lána sam­hliða hækkað mik­ið. Hlut­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020.

Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­­tökum lands­­manna við það að hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­­ar­­lega. Það var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­sent.

Hagn­aður stóru bank­anna þriggja: Lands­­bank­ans, Íslands­­­banka og Arion banka var 60 millj­­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er meiri hagn­aður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagn­að­­ur­inn er drif­inn áfram af vaxta­­tekj­um, aðal­­­lega vegna íbúða­lána, og hærri þókn­ana­­tekj­­um. Vaxta­munur stóru bank­anna, sem er umtals­vert hærri en í sam­an­­burð­­ar­lönd­um, hefur hald­ist til­­­tölu­­lega stöð­ugur þrátt fyrir að banka­skattur hafi verið lækk­­aður umtals­vert.

Líf­eyr­is­­sjóð­irnir með bestu kjörin

Sem stendur bjóða líf­eyr­is­­sjóðir upp á hag­­stæð­­ustu óverð­­tryggðu íbúða­lán­in. Það gæti þó breyst í nán­­ustu fram­­tíð þegar næstu ákvarð­­anir um vaxta­töflu lána þeirra verða tekn­­ar.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­­­­tryggðu kjörin sem stend­­­­ur, 3,45 pró­­­­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­­­­sjóður býður upp á 3,8 pró­­­­sent vext­i.

Líf­eyr­is­­­­sjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, ákvað í síð­­­asta mán­uði að stofna nýjan lána­­­­flokk sjóðs­­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­­tryggð lán til íbúð­­­­ar­­­­kaupa með breyt­i­­­­legum vöxt­­­­um. Vextir hans eru nú 3,85 pró­­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár