Arion banki hækkar vexti um 0,4 prósentustig – Breytilegir vextir nú 4,29 prósent

Tveir af þremur stærstu bönkum lands­ins hafa hækkað íbúð­ar­lána­vexti í gær og í dag. Sá þriðji mun lík­lega fylgja á eftir fyrir viku­lok. Ástæðan er stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í síð­ustu viku.

Arion banki hefur hækkað óverð­tryggða breyti­lega íbúða­lána­vexti sína um 0,4 pró­sentu­stig í 4,29 pró­sent. Bankinn hefur sömu­leiðis hækkað óverð­tryggða fasta vexti til þriggja ára um 0,6 pró­sentu­stig í 5,24 pró­sent.

Bankinn fylgir þar með í fót­spor Lands­bank­ans, stærsta banka lands­ins, sem til­kynnti um hækkun vaxta í gær. Þetta ger­ist í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands ákvað í síð­ustu viku að hækka stýri­vexti um 0,5 pró­sentu­stig upp í tvö pró­sent, en þeir vextir hafa nú hækkað um 1,25 pró­sentu­stig úr 0,75 pró­sentum í maí.

Við­búið var að allir lán­veit­endur á íbúða­lána­mark­aði myndu hækka óverð­tryggða vexti sína vegna þessa og Lands­bank­inn varð fyrstu til þess. Hann að til­kynnti í gær að breyti­legir vextir á óverð­tryggðum íbúða­lánum Lands­bank­ans myndu hækka um 0,35 pró­sentu­stig. Þeir verða eftir breyt­ing­una 4,20 pró­sent.

Fastir vextir á óverð­tryggðum íbúða­lánum bank­ans til þriggja ára hækka um 0,30 pró­sentu­stig og um 0,25 pró­sentu­stig á óverð­tryggðum íbúða­lánum til fimm ára. Lægstu fastir vextir á óverð­tryggðum íbúða­lánum verða eftir breyt­ing­una 4,65 pró­sent.

Búast má við því að Íslands­banki til­kynnti um vaxta­hækkun fyrir viku­lok.

Hækkar útgjöld heimila strax

Ljóst er að hækkun á vöxtum Lands­bank­ans, og hinna stóru bank­anna sem munu án efa fylgja í kjöl­farið á næstu dög­um, mun bíta í buddu lands­manna. Stóru bank­arnir þrír hafa sópað til sín íbúða­lánum frá síð­asta vori sam­hliða því að hús­næð­is­verð hefur hækkað skarpt og upp­hæðir lána sam­hliða hækkað mik­ið. Hlut­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­sent en var 55 pró­sent í byrjun árs 2020.

Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­tökum lands­manna við það að hlut­fall óverð­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­ar­lega. Það var 27,5 pró­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­sent.

Hagn­aður stóru bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka var 60 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er meiri hagn­aður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagn­að­ur­inn er drif­inn áfram af vaxta­tekj­um, aðal­lega vegna íbúða­lána, og hærri þókn­ana­tekj­um. Vaxta­munur stóru bank­anna, sem er umtals­vert hærri en í sam­an­burð­ar­lönd­um, hefur hald­ist til­tölu­lega stöð­ugur þrátt fyrir að banka­skattur hafi verið lækk­aður umtals­vert.

Á mark­aðs­degi Arion banka sem fór fram fyrr í þessum mán­uði kom fram að bank­inn ætlar sér að greiða um og yfir 60 millj­arða króna til hlut­hafa í arð og með end­ur­kaup á bréfum á næst­unni. Sú upp­hæð bæt­ist við 25,5 millj­arða króna sem þeir hafa fengið á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Alls verða allt að 88 millj­arðar króna los­aðir til hlut­hafa frá byrjun yfir­stand­andi árs og þangað til að útgreiðslu­á­formum bank­ans er lokið.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir með bestu kjörin

Sem stendur bjóða líf­eyr­is­sjóðir upp á hag­stæð­ustu óverð­tryggðu íbúða­lán­in. Það gæti þó breyst í nán­ustu fram­tíð þegar næstu ákvarð­anir um vaxta­töflu lána þeirra verða tekn­ar.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­­­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­­­tryggðu kjörin sem stend­­­ur, 3,45 pró­­­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­­­sjóður býður upp á 3,8 pró­­­sent vext­i.

Líf­eyr­is­­­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­­­sjóður lands­ins, ákvað í síð­­asta mán­uði að stofna nýjan lána­­­flokk sjóðs­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­tryggð lán til íbúð­­­ar­­­kaupa með breyt­i­­­legum vöxt­­­um. Vextir hans eru nú 3,85 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár