Mynd: EPA

Arion banki ætlar að losa allt að 88 milljarða króna til hluthafa

Á mark­aðs­degi Arion banka kom fram að bank­inn ætlar sér að greiða um og yfir 60 millj­arða króna til hlut­hafa í arð og með end­ur­kaup á bréfum á næst­unni. Sú upp­hæð bæt­ist við 25,5 millj­arða króna sem þeir hafa fengið á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 greiddi Arion banki 25,5 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs upp á 2,9 millj­arða króna með end­ur­kaupum á eigin bréfum þeirra upp á 22,7 millj­arða króna.

Bankinn hefur þegar til­kynnt að hann ætli að kaupa eigin bréf af hlut­höfum fyrir tíu millj­arða króna á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins og greiða þeim 11,3 millj­arða króna í arð. Það þýðir að frá byrjun árs og með þeim arð- og end­ur­kaupa­greiðslum sem hann hefur þegar ákveðið mun Arion banki skila 46,8 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna.

Í kynn­ingu á mark­aðs­degi Arion banka, sem fór fram í gær, kemur fram að von sé á meiru. Miðað við mark­mið Arion banka um hvert eig­in­fjár­hlut­fall hans ætti að vera telja stjórn­endur bank­ans hægt að losa um 30,1 millj­arð króna til við­bótar til hlut­hafa án þess að fara niður fyrir þau mörk. Ef salan á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Valitor til ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem ákveðin var í sumar, verður sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu eiga að losna á bil­inu átta til ell­efu millj­arðar króna til við­bótar sem hægt yrði að greiða út til hlut­hafa.

Því er ljóst að ef áform Arion banka um arð­greiðslur og end­ur­kaup frá byrjun síð­asta árs og þangað til að hlut­fall eig­in­fjárs­þáttar 1 hjá bank­anum er komið niður í 17 pró­sent ganga eftir, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ilar söl­una á Valitor, munu hlut­hafar hans fá um 84,9 til 87,9 millj­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til þessu útgreiðslu­ferli er lokið.

Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­hagn­aður Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 var 60,1 millj­arðar króna. Það var meiri hagn­aður en þessir þrír kerf­is­lega mik­il­vægu bankar hafa hagn­ast um innan árs síðan 2015.

Áætlun sem lengi hefur legið fyrir

Ekk­ert í þess­ari áætlun stjórnar Arion banka ætti að koma neinum á óvart. Þegar Arion banki var skráður á markað á fyrri hluta árs­ins 2018 lá fyrir að mark­mið ráð­andi hlut­hafa væri að greiða sér út eins mikið af eigin fé hans og hægt væri, á sem skemmstum tíma.

Úr kynningu Arion banka á markaðsdeginum sem fram fór í gær. Á myndinni er sýnt hvað sé búið að losa til hluthafa og hvað sé stefnt að því að losa í nánustu framtíð.
Úr kynn­ingu Arion banka á mark­aðs­deg­inum sem fram fór í gær. Á mynd­inni er sýnt hvað sé búið að losa til hlut­hafa og hvað sé stefnt að því að losa í nán­ustu fram­tíð.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Kvika vann fyrir Kaup­þing, þá stærsta eig­anda Arion banka, í aðdrag­anda skrán­ingar kom fram að svig­rúm væri til að greiða út allt að 80 millj­arða króna, eða þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka, á til­tölu­lega skömmum tíma með ýmsum hætt­i.

Það væri hægt að gera í gegnum breyt­ingu á fjár­mögnun bank­ans, með því að draga úr útlánum hans til fyr­ir­tækja, með því að minnka kostnað í gegnum upp­sagnir á starfs­fólki, með því að hrinda í gang umfangs­mik­illi end­ur­kaupa­á­ætlun á hluta­bréfum í bank­anum og svo auð­vitað í gegnum arð­greiðsl­ur.

Þá á átti að selja und­ir­liggj­andi eignir sem væru ekki hluti af kjarna­starf­semi Arion banka.

Til að fram­fylgja áætl­un­inni voru ráðnir nýir stjórn­endur. Fyrst Benedikt Gíslason í stól banka­stjóra sum­arið 2019, en hann hafði verið í stjórn Kaup­þings á árunum 2016 til 2018 og svo áðgjafi Kaup­þings í mál­efnum Arion banka og setið í stjórn bank­ans frá árinu 2018. Hann réð svo Ásgeir Helga Reyk­fjörð Gylfason skömmu síðar sem aðstoð­ar­banka­stjóra.

Tíma­bundið stopp vegna COVID-19

Í byrjun árs 2020 hafði flest í leik­á­ætl­un­inni gengið eft­ir. Eigið fé Arion banka hafði lækkað úr 225,7 millj­örðum króna í 190 millj­arða króna frá lokum árs 2017 og fram til loka árs 2019, eða um tæpa 36 millj­arða króna.

Til við­bótar töldu grein­ing­ar­að­ilar að bank­inn geti búið þannig um hnút­anna að það myndi losna um tugi millj­arða króna til útgreiðslu þegar árið 2020 væri á enda, aðal­lega með því að minnka útlán sín.

Til stóð að minnka þau um 20 pró­sent á síð­asta ári. Í afkomu­spá sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans vann um upp­gjör Arion banka í aðdrag­anda birt­ingu árs­reikn­ings hans fyrir árið 2019 var því spáð að arð­greiðslur bank­ans gæti orðið 50 millj­arðar króna á tólf mán­uð­um.

Svo skall kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á og kom í veg fyrir að þau áform gengu eftir sam­kvæmt þeirri tíma­línu sem lagt var upp með. Sam­hliða því að Seðla­banki Íslands réðst í að veita bönk­unum miklar til­slak­anir til að þeir gætu aðstoðað í bar­átt­unni við efna­hagslægð­ina sagði Ásgeir Jóns­son, seðla­banka­stjóri, að það væri algjör­lega ótækt af Arion banka að íhuga arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum við ríkj­andi aðstæð­ur.

Horfur bötnuðu hratt

Þessi staða breytt­ist skyndi­lega í byrjun árs 2021. Þá var nokkuð ljóst að svört­ustu spár um áhrif kór­ónu­veiru­krepp­unnar á banka­kerfið myndu alls ekki ganga eftir. Þvert á móti voru þeir farnir að græða gríð­ar­legt magn af pen­ingum á ástand­inu. Arion hagn­að­ist til að mynda um 12,5 millj­arða króna í fyrra og náði því mark­miði sínu á síð­asta árs­fjórð­ungi að vera með arð­semi á eigin fé sitt yfir tíu pró­sent­um, en hún var alls 11,8 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs.

Það leiddi til þess að Arion banki fékk heim­ild Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands til að ráð­ast end­ur­kaup á hluta­bréfum. Auk þess mat bank­inn sem svo að arð­greiðslu­mark­mið hans væru í takti við það sem heim­ilt er að ger­a.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hefur Arion banki hagn­ast um 22 millj­arða króna, en hagn­aður bank­ans nam rúm­lega átta millj­örðum króna á síð­ustu þremur mán­uð­um.

Arðsemi eigin fjár hjá Arion banka það sem af er ári er heil 15,2 pró­sent. Þegar horft er á síð­ast árs­fjórð­ung, sem hófst í byrjun júlí og lauk í lok sept­em­ber, er arð­semin enn hærri, eða 17 pró­sent.

Í frétta­til­kynn­ingu sem fylgdi birt­ingu upp­gjörs­ þriðja árs­fjórð­ungar sagði Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri bank­ans, að bæði eig­in- og lausa­fjár­hlut­föll bank­ans væru „með því hæsta sem ger­ist í Evr­ópu.“ Bank­inn gæti þess vegna verið í „mjög góðri stöðu mjög góðri stöðu til að lækka eigið fé með útgreiðsl­um.“

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka.

Það ætlar hann sann­ar­lega að gera, um marga tugi millj­arða króna.

Minni banki með meira fé til að losa

Það er ýmis­legt sem hefur und­ir­byggt þennan árangur í rekstr­inum. Arion hefur náð árangri í rekstri sínum, aukið vaxta­mun, losað sig undan miklu magni fyr­ir­tækja­lána, fækkað starfs­mönnum og náð að gera stóran hluta af þjón­ustu sinni staf­ræna.

En bank­inn hefur líka fengið fjöl­mörg tól frá stjórn­völdum og Seðla­banka Íslands til að stór­auka það fé sem hann getur greitt til hlut­hafa. Þar ber að nefna ákvörðun um að lækka banka­skatt í einu skrefi í fyrra í stað þess að fram­kvæma þá lækkun á fjórum árum milli 2021 og 2024 líkt og áður stóð til. Þetta skil­aði 6,1 millj­arði króna til þeirra sem greiða banka­skatt­inn úr rík­is­sjóði.

Seðla­bank­inn ákvað líka að afnema tíma­bundið sveiflu­jöfn­un­ar­auka á eigið fé banka og stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent, sem hratt af stað mik­illi aukn­ingu á virði eigna sem bankar sýsla með og fjár­magna, sér­stak­lega hluta­bréfa og íbúða. Breyt­ing­una má glöggt sjá í upp­gjörum bank­anna síðan að þetta var ákveð­ið og í gríð­ar­legum hækk­unum á virði hluta­bréfa, þar á meðal í Arion banka.

Markaðsvirðið aukist um 200 milljarða frá því í mars 2020

Virði Arion banka hefur aldrei verið meira þrátt fyrir að verið sé að dæla pen­ingum út úr honum. Á einu ári hefur hluta­bréf­verðið hækkað um 124 pró­sent og frá ára­mótum hefur það hækkað um 106 pró­sent. Mark­aðsvirði bank­ans er nú um 300 millj­arðar króna. Í mars í fyrra fór mark­aðsvirðið um tíma undir 100 millj­arða króna. Því hefur virði hluta­bréf­anna auk­ist um 200 millj­arða króna og á rúmu einu og hálfu ári.

Stærstu eig­endur bank­ans í dag eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Samtals eiga þrír stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi 27,02 pró­sent hlut. Aðrir líf­eyr­is­sjóðir sem eiga meira en eitt pró­sent hlut eiga sam­tals 15,74 pró­sent með beinum hætti. Því eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­ins saman beint næstum 43 pró­sent í bank­anum. Í ljósi þess að ýmsir fjár­fest­ing­ar­sjóðir, sem líf­eyr­is­sjóðir eru hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar í, eru fyr­ir­ferða­miklir í eig­enda­hópnum má ætla að end­an­legur sam­eig­in­legur eign­ar­hlutur þeirra sé hærri.

Arion banki á sem stendur 7,26 pró­sent í sjálfum sér eftir end­ur­kaup bréfa, sem verður vænt­an­lega eytt þegar hlutafé verður lækkað í nán­ustu fram­tíð. Þá eykst hlut­falls­legur eign­ar­hlutur eft­ir­stand­andi eig­enda.

Stærsti einka­fjár­festir­inn, og sá sem sagður er hafa mikil áhrif á þá sókndjörfu útgreiðslu­stefnu sem Arion banki stundar, eru fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir sem eiga sem stendur 4,73 pró­sent hlut í bank­anum. Sá hlutur er nú met­inn á 14,1 millj­arð króna og hlut­deild Stoða í þeim útgreiðslum sem átt hafa sér stað á árinu, eða eru fyr­ir­hug­aðar í nán­ustu fram­tíð, er á bil­inu 4 til 4,2 millj­arðar króna. Næst stærsti einka­að­il­inn í hópnum er fjár­fest­inga­fé­lagið Hvalur, sem stýrt er af Krist­jáni Lofts­syni, með 2,22 pró­sent eign­ar­hlut. Virði hans er um 6,6 millj­arðar króna sem stendur og hlutur Hvals í útgreiðsl­unum í kringum 1,9 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár