Lækkun bankaskatts í fyrra rýrði tekjur ríkissjóðs um sex milljarða króna

Sitjandi rík­is­stjórn mót­aði þá stefnu í upp­hafi síð­asta kjör­tíma­bils að það ætti að lækka banka­skatt í skrefum, meðal ann­ars til að bæta kjör almenn­ings. Skatt­ur­inn var svo lækk­aður hratt í fyrra og tekjur rík­is­sjóðs vegna hans lækk­uðu um 56 pró­sent.

Á meðal aðgerða sem kynntar voru í fyrsta efnahagspakka ríkisstjórnarinnar til að bregðast við kórónuveirufaraldrinum var að lækka bankaskatt.
Á meðal aðgerða sem kynntar voru í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var að lækka banka­skatt. Mynd: Bára Huld Beck

Sér­stakur skattur á fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo­kall­aður banka­skattur, var lækk­aður í fyrra úr 0,376 í 0,145 pró­sent á heild­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna. Alls borga fimm fjár­mála­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki.

Áður hafði verið stefnt að því að lækka skatt­inn niður í skrefum á fjög­urra ára tíma­bili og að sú lækkun myndi að fullu verða komin til fram­kvæmda árið 2024. Þessari lækkun var flýtt með vísun í að efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefðu kallað á það.

Fyrir vikið lækk­aði álagður banka­skattur sem rík­is­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­sent.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu vegna álagn­ingu opin­berra gjalda á lög­að­ila vegna rekstr­ar­árs­ins 2020 sem birt var í gær.

Skörp lækkun banka­skatts­ins, hefur ekki skilað því að vaxta­munur banka hafi lækkað sem neinu nemur en spilað inn í miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa í þeim bönkum sem skráðir eru á markað.

Frestað til að tryggja ríkinu meiri tekjur

Síðasta rík­is­stjórn, sem nú er við það að end­ur­nýja sam­starf sitt, hafði lengi stefnt að því að lækka skatt­inn, sem hafði skilað rík­is­sjóði miklum tekjum í kjöl­far banka­hruns­ins, fyrst með að leggj­ast af krafti á þrotabú föllnu bank­anna og síðan með því að leggj­ast á starf­andi íslenska við­skipta­banka.

[adspot]Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja höfðu árum saman kvartað tölu­vert undan banka­skatt­inum, sagt að hann dragi úr sam­keppn­is­hæfni íslenska banka­kerf­is­ins og leiði til verri kjara fyrir almenn­ing.

Frumvarp um að lækka banka­skatt­inn í skrefum var lagt fram 2018 og sam­kvæmt því átti það ferli að eiga sér stað milli 2020 og 2023. Í lok þess tíma­bils átti skatt­ur­inn að verða 0,145 pró­sent.

Í júní 2019 var ákveðið að fresta þessum áformum um eitt ár og að lækkun skatts­ins myndi hefj­ast 2021 en yrði komin að öllu leyti til fram­kvæmda á árinu 2024. Þær breyt­ingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efna­hags­lífi, aðal­­­­­lega vegna gjald­­­þrots WOW air og loðn­­u­brests.

Sagði að skatturinn yrði að fara

Síðla árs 2019 var frum­varp um að lækka banka­skatt í þrepum svo sam­þykkt. Samkvæmt því átti að lækka skatt­inn niður í 0,145 pró­sent í þremur áföngum á árunum 2021 til 2024.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði meðal ann­ars í aðdrag­anda þess í stöðu­upp­færslu á Twitter að skatt­ur­inn þyrfti að fara. Það væri grund­vall­ar­at­riði að íslenskir bankar myndu búa við eðli­leg og sam­keppn­is­hæf skil­yrði til að sinna við­skipta­vinum sín­um.

Þar hlekkj­aði Bjarni í frétt Frétta­­blaðs­ins­ sem birst hafði sama dag þar sem kom fram að ef ­sér­­stakur banka­skattur yrði afnumin með öllu myndi sölu­and­virðið sem rík­­is­­sjóður gæti vænst að fá fyrir hlutafé í Íslands­­­banka og Lands­­banka, yrðu þeir seldir að fullu, hækka um 70 millj­­arða króna.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að með því yrði komið til móts við gagn­rýni hags­muna­sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja á fjár­hæð banka­skatts­ins „í því skyni að liðka fyrir lækkun útlána­vaxta og hækkun inn­eign­ar­vaxta til hags­bóta fyrir almenn­ing.“

Gríðarlegur hagnaður í heimsfaraldri

Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var lækk­un­inni svo flýtt og gjald­hlut­fallið var fært niður í 0,145 pró­sent vegna skulda í árs­lok 2020. Hún kom því öll til fram­kvæmda í fyrra í stað þess að verða í skrefum á fjórum árum.

Auk þessa var sveiflu­jöfn­un­ar­auki á eigið fé banka afnumin tíma­bundið og stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent, sem hratt af stað mik­illi aukn­ingu á virði eigna sem bankar sýsla með og fjár­magna, sér­stak­lega hluta­bréfa og íbúða. Breyt­ing­una má glöggt sjá í upp­gjörum bank­anna síðan að þetta var ákveðið.

Eftir að hafa tapað sam­tals 7,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 end­uðu stóru bank­arnir þrír með sam­eig­in­legan hagnað upp á 29,8 millj­arða króna á öllu síð­asta ári.

[adspot]Í ár hefur hagn­að­ur­inn verið enn meiri. Sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra var rúm­lega 60 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Það er meiri hagn­aður en stóru bank­arnir þrír hafa hagn­ast innan árs frá árinu 2015.

Þegar mark­aðsvirði þeirra þriggja banka sem skráðir eru á mark­aði er skoðað er ljóst að ákvarð­anir stjórn­valda og seðla­banka, meðal ann­ars skörp lækkun banka­skatts, hefur leitt af sér miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa. Á einu ári hafa hluta­bréf í Arion banka hækkað um 131 pró­sent, hluta­bréf í Kviku banka um 107 pró­sent og bréf í Íslands­banka hafa hækkað um 60 pró­sent frá því í sumar, þegar hann var skráður á markað.

Sagðir hafa svigrúm til að lækka vaxtamun

Bank­arnir hafa hins vegar ekki nýtt þetta svig­rúm til að bjóða við­skipta­vinum sínum stór­lega bætt kjör, líkt og hags­muna­gæslu­armur þeirra boð­aði að myndi ger­ast ef banka­skattur myndi lækka. Þótt vaxta­kjör hafi snar­batnað á síð­asta ári, og fram á vorið 2021, þá er ástæða þess lægri stýri­vextir Seðla­banka Íslands.

[links]Vaxta­munur stóru bank­anna þriggja var á bil­inu 2,4-2,7 pró­sent á fyrri helm­ingi yfir­stand­andi árs, sem er mjög svipað og hann var á sama tíma­bili árið 2020 og sem hann var að með­al­tali allt árið 2019, þegar hann var 2,7 pró­sent að með­al­tali. Til sam­an­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­senti, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­riti Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Stjórn VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, sendi frá sér áskorun til stóru bank­anna þriggja í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­ins þar sagði að það væri „holur hljómur í þeirri full­yrð­ingu bank­anna, sem auð­vitað allir hafa orð­miklar stefnur um sam­fé­lags­á­byrgð, að hinn mikli hagn­aður skili við­skipta­vinum betri kjörum.“ Í

tölum sem VR birti kom meðal ann­ars fram að með­al­vextir útlána bank­anna væru 5,22 pró­sent á móti aðeins eitt pró­sent með­al­vöxtum inn­lána sem gerði mis­mun uppá heil 4,22 pró­sentu­stig. „Álagning íslenskra banka er hrein­lega allt of mikil og hana verður að lækka. Það mætti vel lækka vaxta­mun­inn um 1,25 pró­sentu­stig svo hann sé nær því sem ger­ist í nágranna­lönd­unum og með því mætti skila 40 millj­örðum króna árlega til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga í land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár