Amazon að stíga enn stærri skref inn á verslanamarkað

Amazon hefur byggt upp starfsemi sína með sölu á internetinu en hefur í vaxandi mæli verið að byggja upp verslana­starfsemi að undan­förnu.

Tækni­risinn Amazon er með mikla innreið á verslana­markað í undir­búningi samkvæmt umfjöllun sem Wall Street Journal birti í gær og fleiri erlendir miðlar tóku upp í kjölfarið.

Amazon hyggst opna verslanir vítt og breitt um Banda­ríkin og verða fyrstu verslanirnar opnaðar á í Los Angeles. Verslanirnar verða hefð­bundnir stór­markaðir en tækni­legir innviðir verða byggðir á búnaði sem Amazon hefur þróað, meðal annars sjálf­virkum lagerum og sjálf­virku afgreiðslu­kerfi.

Amazon hefur á undan­förnum árum unnið að þróun hugbúnaðar- og tækni­lausna fyrir smásölu­verslanir sem meðal annars byggir á skynjurum í lofti búnaða, sem tengdir eru við app í símum þeirra sem versla í búðunum. Með því móti geta viðskipta­vinir gengið inn, náð í vörur og farið út aftur, án þess að þurfa að fara með vörurnar í gegnum sjálfs­afgreiðslu­kerfi eða stoppa á búðar­kassa.

Þessar lausnir hafa gengið undir nafninu Amazon Go og er Amazon nú sagt vera að undirbúa opnun á um 3 þúsund slíkum verslunum, en þeir verða skipulagðar í anda verslana eins og 7/11, eða álíka verslanir.

Eftir að Amazon keypti Whole Foods verslana­keðjuna hefur fyrir­tækið meðal annars stigið stór skref í að tengja vildarkjara­kerfi notenda sinna, Amazon Prime, við afsláttar­kerfi Whole Foods, en um 130 milljónir manna eru nú með Amazon Prime áskrift, en hún færir notandum fasta afslætti.

Samtals eru 479 Whole Foods verslanir og hefur þeim fjölgað nokkuð hratt undan­farin misseri.

Markaðs­virði Amazon nemur nú 821 milljarði Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 98 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár