Heilbrigðisráðherra boðar afléttingu sóttvarnaraðgerða

Heilbrigðis­ráðherra og forstjóri Land­spítalans segja allar mögulegar afléttingar í skoðun með hliðsjón af skynsemi og öryggi. Næstu skref verði að aflétta neyðar­stigi spítalans. Einungis níu dagar eru síðan að aðgerðir voru hertar.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fram undan eru afléttingar sótt­varnar­ráðstöfunum sem verða innleiddar með stuttum en öruggum skrefum. Þetta kemur fram í grein sem Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra og Guðlaug Rakel Jóns­dóttir, settur forstjóri Land­spítalans, skrifuðu saman og birtist á Vísi í morgun.

Þar segir að brýnt sé „að skoða hvernig megi létta á sótt­varnar­ráðstöfunum til að halda samfélaginu sem mest gangandi. Í samráði við sóttvarna­lækni eru nú allar mögulegar afléttingar í skoðun með hliðsjón af skynsemi og öryggi. Næstu skref eru að aflétta neyðar­stigi spítalans. Áður en það er gert verðum við að vera fullviss um að slíkt sé óhætt. Það verður gert að vel ígrunduðu máli, með hliðsjón af nýjustu spálíkönum og með hliðsjón af gögnum frá okkar færustu sérfræðingum.“

Í greininni kemur ekki fram hvenær nákvæmlega von sé á afléttingum.

Á neyðarstigi frá því í lok desember og aðgerðir nýlega hertar

Land­spítalinn hefur verið á neyðar­stigi frá 28. desember í fyrra og einungis níu dagar eru síðan að harðar sótt­varnar­aðgerðir innanlands voru hertar enn frekar. Þá var tilkynnt að börum og spila­sölum yrði gert að loka, ein­ungis tíu manns mættu almennt koma saman og ekki yrði lengur hægt að bjóða fleiri gesti vel­komna á við­burði gegn því að þeir færu í hraðpróf. Þær aðgerðir áttu að gilda til 2. febrúar.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við frétta­menn fyrir utan Ráð­herra­bú­stað­inn við Tjarn­ar­götu við þetta tilefni að það væri óhjá­kvæmi­legt að grípa til þess­ara herð­inga. Hún sagði að staðan væri gríð­ar­lega þung inni á Land­spít­ala og víðar í heil­brigð­is­kerf­inu. Full sam­staða væri í rík­is­stjórn­inni um að herða aðgerðir á þessum tíma­punkti.

Bjartari tímar í kortunum

Í grein sinni rekja Willum Þór og Guðlaug Rakel árangurinn sem þau segja að hafi náðst barátt­unni við kórónu­veiru­faraldurinn og segja það frum­skyldu stjórn­valda að tryggja þær aðstæður að allir geti sótt sér viðunandi heilbrigðis­þjónustu. „Við ætlum okkur út úr þessum faraldri og öflugt heilbrigðis­kerfi er því forgangs­verkefnið.“

Sérstak­lega hrósa þau Covid-19 göngu­deildinni og gjörgæslu­meðferð Covid-19 sjúklinga.

„Það er ljóst að bjartari tímar eru í kortunum og við þurfum að stíga varfærin skref í átt að afléttingum. Þrátt fyrir að einkenni ómikron séu vægari og minna sé um sjúkrahús­innlagnir þá er fólk enn að veikjast. Eigin­leikar ómikron veirunnar valda því að mikið er um smit á meðal barna og ungmenna, með tilheyrandi áhrifum á fjöl­skyldur og samfélagið í heild.

Heilbrigðis­kerfið í heild sinni er að takast vel á við þessa áskorun en það er eingöngu gert með miklu vinnu­framlagi heilbrigðis­starfsfólks, mikilli samvinnu heilbrigðis­stofnana um allt land, og með samstilltum aðgerðum – þ.e. sótt­varnar­aðgerðum og aðgerðum stjórn­valda til að létta á álagi og tryggja mönnun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár