Barir loka, 10 manna samkomutakmarkanir, engir hraðprófaviðburðir en óbreytt skólastarf

Þrír ráð­herrar kynntu hertar sam­komu­tak­mark­anir og end­ur­vakn­ingu efna­hags­að­gerða eftir fund rík­is­stjórn­ar­innar í dag. Tíu manns mega koma saman að hámarki, nema á stöðum eins og veit­inga­stöðum, í skólum og sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðvum.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að herða sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands tals­vert, sam­kvæmt því sem fram kom í máli ráð­herra eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag. Börum og spila­sölum verður gert að loka, ein­ungis 10 manns mega almennt koma saman og ekki verður lengur hægt að bjóða fleiri gesti vel­komna á við­burði gegn því að þeir fari í hrað­próf. Áfram mega þó 50 manns sækja sviðs­lista­við­burði. Skóla­starf verður óbreytt á öllum skóla­stigum.

Samfara þessum hertu aðgerðum, sem taka gildi á mið­nætti og verða í gildi til 2. febr­úar, stendur til að ráð­ast í frek­ari efna­hags­að­gerðir til að bæta rekstr­ar­að­ilum upp tjón sem hlýst af sótt­varna­ráð­stöf­unum. Lok­un­ar­styrkir verða til dæmis end­ur­vaktir fyrir þá sem þurfa að loka og til stendur að leggja fram frum­varp um að gjald­dögum á sköttum hjá fyr­ir­tækjum í veit­inga­geir­anum verði frestað.

„Óhjákvæmilegt“ og full samstaða í stjórninni

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við frétta­menn fyrir utan Ráð­herra­bú­stað­inn við Tjarn­ar­götu að það væri óhjá­kvæmi­legt að grípa til þess­ara herð­inga. Hún sagði að staðan væri gríð­ar­lega þung inni á Land­spít­ala og víðar í heil­brigð­is­kerf­inu. Full sam­staða væri í rík­is­stjórn­inni um að herða aðgerðir á þessum tíma­punkti.

Fram kom í máli Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra að mönnun yrði styrkt á Land­spít­al­anum, en nánar má lesa um það hér í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. Willum sagði að allt sam­fé­lagið myndi þurfa að ganga í takt og draga úr sam­gangi næstu tvær vikur til að draga úr álag­inu á spít­al­ann. Hann sagði að búið væri að meta breyttar reglur með hlið­sjón af lög­mæti, til­efni og nauð­syn, en að þær væru þó enn í smíðum í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Sund­laugar- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða áfram opnar eins og verið hefur, og heim­ilt að taka við 50 pró­sent af leyfi­legum heild­ar­gesta­fjölda. Sömu reglur verða sömu­leiðis áfram í gildi hvað varðar veit­inga­staði, en þar hafa tutt­ugu við­skipta­vinir mátt vera í sama sótt­varn­ar­hólfi. Svo verður áfram.

Einungis eru þrír dagar síðan rík­is­stjórnin tók ákvörðun um að halda sótt­varna­ráð­stöf­unum óbreyttum í þrjár vikur í við­bót, eða til 2. febr­úar. Þær reglur fólu í sér að í mesta lagi 20 manns mættu koma saman, með und­an­tekn­ingu varð­andi 50 gesti á sitj­andi við­burðum og 200 gesti með nei­kvætt hrað­próf.

Megininntak reglna með þeim breytingum sem verða á miðnætti

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir fara úr 20 í 10 manns.
  • Áfram 2 metra nálægð­ar­mörk og óbreyttar reglur um grímu­skyldu.
  • Áfram 20 manns að hámarki í rými á veit­inga­stöðum og óbreyttur opn­un­ar­tími.
  • Sviðs­listir heim­ilar með allt að 50 áhorf­endum í hólfi.
  • Heimild til auk­ins fjölda með hrað­prófum fellur brott.
  • Sund-, bað­staðir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og skíða­svæði áfram með 50% afköst.
  • Íþrótta­keppnir áfram heim­ilar með 50 þátt­tak­endum en án áhorf­enda.
  • Hámarks­fjöldi í versl­unum fari úr 500 í 200 manns.
  • Skemmti­stöðum, krám, spila­sölum og spila­kössum verður lokað.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár