Frá London til Parísar

Alþjóð­legir bankar eru byrj­aðir að und­ir­búa flutn­ing á starf­semi sinni frá London til Parísar, segir yfir­maður hjá fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Frakk­landi.

Eftir Brexit kosn­ing­una í júní, þar sem breskur almenn­ingur kaus með því að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, hefur staða efna­hags­mála í Bret­landi farið versn­andi.

Áhyggju­radd­irnar nú koma ekki síst úr fjár­mála­hverf­inu í London, City, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem breska rík­is­út­varpið BBC fjallar um á vef sínum, þá eru alþjóð­legir bankar þegar byrj­aðir að und­ir­búa flutn­ing á starf­semi sinni frá London til Parísar í Frakk­landi.

Benoit de Juvigny, einn yfir­manna fjár­mála­eft­ir­lits­ins í Frakk­landi, segir í við­tali við Newsnight að stórir alþjóð­legir bankar séu þegar búnir að stíga fyrstu skrefin í átt að flutn­ingi og mörg fleiri fyr­ir­tæki hafi einnig spurst fyrir um hvernig best sé að standa að slíkum flutn­ingi. 

Í umfjöllun BBC kemur einnig fram að nokkur sam­keppni sé nú hafin meðal borg­ar­svæða í Evrópu sem vilja taka á móti fyr­ir­tækjum sem eru með höf­uð­stöðvar Evr­ópu­deilda sinna í London. Eru það meðal ann­ars Frank­furt, Amster­dam og Lúx­em­borg.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir Bretland enda hefur City hverfir byggst upp sem ein helsta fjár­mála­mið­stöð heims­ins á und­an­förnum árum. Yfir 700 þús­und manns starfa í fjár­mála­geir­anum, og skyldum geirum, í London. 

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að bresk stjórn­völd muni gera allt sem í þeirra valdi standi til að tryggja efna­hags­mála hags­muni Bret­lands við útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu. Ekki liggur enn fyrir hvernig að henni verður staðið, en fyrir liggur að breska þingið mun hafa loka­orðið um ákvörð­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár