Eigandi Fréttablaðsins selur hlut sinn í Bláa lóninu til Stoða – Kaupverðið trúnaðarmál

Fjár­festinga­félagið Stoðir hefur keypt hlut Helga Magnússonar í Bláa lóninu. Fyrir rúmum tveimur árum var hlutur hans metinn á um þrjá milljarða króna en hefur mat á virði félagsins hefur síðan lækkað.

Helgi Magnússon, aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son, aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Torg.is

Félagið Hofgarðar ehf. sem er í eigu Helga Magnússonar, hefur selt sex prósent hlut sinn í Bláa lóninu til fjár­festinga­félagsins Stoða. Kaup­verðið er trúnaðarmál en Helgi segir þó að um „mikil verðmæti“ sé að ræða.

Frá þessu er greint í Frétta­blaðinu í dag en Helgi er lang­stærsti eigandi útgáfu­félags þess. Hann er einnig á meðal hluthafa í Stoðum, en það félag er eitt fyrir­ferðamesta fjár­festinga­félag á Íslandi og á stóra hluti í Símanum, Kviku, Arion banka og Play. Stoðum er stýrt af Jóni Sigurðs­syni. Helgi mun láta af störfum sem stjórnar­formaður Bláa lónsins samhliða sölunni.

Stærsti eig­andi félags­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­ar­hlut upp á 39,6 pró­sent. Eigandi þess er Kólfur ehf., eign­ar­halds­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmundsen, for­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­son­ar. Kólfur keypti tæp­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018. Í þeim viðskiptum var Bláa lónið metið í heild á 50 milljarða króna og hlutur Helga Magnússonar þá metinn á um þrjár milljarða króna. 

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, sem keypti 30 pró­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­lega fimm­­földu þáverandi bók­­færðu virði hlut­­ar­ins í maí 2019, eða á 15 millj­arða króna.

Metið á um 40 milljarða króna í upphafi árs

Síðasta eina og hálfa árið hefur hins vegar verið erfið í rekstri Bláa lónsins líkt og fleiri ferða­þjónustu­fyrirtækja vegna kórónu­veiru­faraldursins.

Bláa Lóninu var gert að loka starfs­stöðvum sínum í Svarts­engi þann 23. mars 2020 í kjölfar reglna um ferða­takmarkanir milli landa og samkomu­banns sem sett var á. Starfs­stöðvarnar voru opnaðar aftur í fyrra­sumar en svo lokað aftur þegar kórónu­veiran fór aftur á kreik. Alls voru starf­stöðvar Bláa lónsins lokaðar í sex mánuði á árinu 2020.

Bláa lónið tapaði 20,7 milljónum evra, 3,2 milljörðum króna, á síðasta ári og tekjur þess drógust saman um 74 prósent frá árinu 2019.

Heildar eigið fé Bláa lónsins var 57,2 milljónir evra, 8,9 milljarðar króna, í lok síðasta árs og óráð­stafað eigið fé félagsins var 35,3 milljónir evra, um 5,5 milljarðar króna. Eigið féð lækkaði um 28 prósent í fyrra.

Í ársskýrslum lífeyris­sjóða sem eru á meðal hluthafa í bæði Hvatningu og Blávarma er hægt að sjá að þeir hafa lækkað verðmat sitt á félaginu á síðasta ári og meta það nú á bilinu 39-41 milljarð króna. Miðað við það verðmat hefur Helgi selt hlut sinn á 2,3 til 2,5 milljarða króna.

Töpuðu minna en greitt var út í arð árin áður

Tap Bláa lónsins á árinu 2020 var í heild lægra en síðasta arðgreiðsla sem greidd var út úr félaginu. Á árinu 2019 fengu hluthafar alls 30 milljónir evra, þá um 4,3 milljarða króna, í arðgreiðslu vegna frammistöðu ársins á undan. Árið áður, 2018, nam arðgreiðslan til hluthafa 16 milljónum evra, eða um 2,3 milljörðum króna. Því var tap félagsins í fyrra um 45 prósent af arðgreiðslum áranna 2018 og 2019.

Vegna kórónu­veiru­faraldursins sagði Bláa lónið upp 164 starfs­mönnum í lok mars og í lok maí var 402 starfs­mönnum til viðbótar sagt upp. Í lok ágúst voru 237 starfs­menn endur­ráðnir tíma­bundið en stærstur hluti þess hóps fékk ekki endur­ráðningu í lok október. Alls fækkaði meðal­fjölda starfs­manna á árinu 2020 miðað við heilsárs­störf úr 726 í 431.

Bláa lónið fékk alls 591,2 milljónir króna í stuðnings­greiðslur úr ríkis­sjóði til að standa straum af kostnaði vegna uppsagna á starfs­fólki í fyrra. það úrræði stjórn­valda heim­ilaði fyr­ir­tækjum sem orðið höfðu fyrir miklu tekju­falli að sækja styrk fyrir allt að 85 pró­sent af launa­kostn­aði á upp­sagn­ar­fresti í rík­is­sjóð.

Auk þess fengu 454 starfs­menn fyrir­tækisins laun í gegnum hluta­bótaleiðina í þrjá mánuði á síðasta ári. Eina fyrirtækja­samsteypan sem setti fleiri starfs­menn á leiðina var Icelandair Group.

Laun stjórnar og forstjóra Bláa lónsins á síðasta ári voru 811 þúsund evrur, um 126 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár