Skipar starfshóp um nýtingu vinds á hafi

Hvar er mögulegt að hafa fljótandi vind­myllur umhverfis Ísland? Hvar eru skilyrði óhagstæð vegna fiskimiða og siglinga­leiða, farfugla og náttúru? Hlutverk nýs starfs­hóps verður að komast að þessu.

Vindmyllur er ekki hægt að setja niður hvar sem er á hafi úti.
Vind­myllur er ekki hægt að setja niður hvar sem er á hafi úti. Mynd: úr safni

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp sem vinni samantekt um möguleika á nýtingu vinds á hafi í lögsögu Íslands. Saman­tektina á að nýta til undir­búnings stefnu­mörkunar stjórn­valda um nýtingu vinds á hafi sem liður í gerð uppfærðrar orkuskipta­áætlunar.

Óskað verður tilnefninga frá ÍSOR, Orku­stofnun, Veður­stofunni og Náttúru­fræði­stofnun og formaður skipaður án tilnefningar. Gert er ráð fyrir að starfs­hópurinn leiti m.a. upplýsinga hjá framan­greindum aðilum auk Hafrannsóknarstofnun, Samorku og Lands­virkjun ásamt upplýsingum erlendis frá.

Í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar kemur fram að marka skuli stefnu um vind­orkuver á hafi. Áður en sú stefnu­mótun hefst þarf hins vegar að liggja fyrir heildrænt yfirlit yfir möguleika til fram­leiðslu raforku frá vind­orkuverum á hafi.

Í svonefndri Grænbók, sem umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson lét vinna í vetur, eru dregnar upp sviðs­myndir um framtíðar orkuþörf hér á landi. Flestar gera þær ráð fyrir aukinni orkuþörf, sumar verulega aukinni þörf á komandi áratugum. Leita þarf því allra leiða varðandi nýja orkuskosti, segir í samantekt umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytisins sem Kjarninn fékk um vindorku­áform á hafi úti, mál sem kynnt var á fundi ríkis­stjórnarinnar í gær.

Mikilvægt sé að hafa sem besta yfirsýn yfir þróun vind­orku­nýtingar á hafi og grunn­upplýsingar um hagkvæmni orku­fram­leiðslunnar saman­borið við aðra orkukosti. Skoða þarf að mati ráðuneytisins vandlega hvort og þá hvernig vindorka á hafi verði liður í þeirri orkuskipta­áætlun sem sett verður fram á næstu misserum.

Skipun fyrr­greinds starfs­hóps er liður í því verkefni. Ráðuneytið segir í svari sínu til Kjarnans að upplýsingar liggi víða, m.a. hjá norrænum orku­rannsóknum og einnig sé hægt að líta til skýrslu sem lögð var fram á Alþingi af ráðherra orkumála í nóvember 2018 og tók m.a. til vindorku á landi og sjávarfalla­orku.

Starfs­hópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um eftir­farandi atriði:

  • Fýsileika orku­vinnslu á hafi við Ísland.
  • Leggja þarf gróft mat á mögulega afl- og orku­framleiðslu­getu.
  • Taka þarf saman upplýsingar um hagkvæmni orku­framleiðslu á hafi og mögulegrar þróunar.
  • Hvar sé raunhæft að hafa botn­fastar vind­myllur.
  • Hvar sé mögulegt að hafa fljótandi vind­myllur.
  • Hvar séu hagstæð vind­skilyrði.
  • Hvar séu skilyrði óhagstæð vegna fiskimiða og siglinga­leiða.
  • Hvar séu mögulegar land­tengingar frá vind­myllum við Ísland.
  • Hvar séu skilyrði óhagstæð vegna farfugla og náttúru.
  • Hvort hætta stafi af hafís eða öðrum náttúru­fyrir­brigðum.
  • Hvað þurfi að hafa sérstak­lega í huga varðandi úrbætur á reglu­verki til að styðja við þróun nýtingar vindorku á hafi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár