Málsmeðfeðferð lögreglu við rannsókn Hafnarfjarðarmáls kærð til saksóknara

Kæru barna­vernd­ar­nefndar var vísað frá án rann­sóknar og börnin fengu ekki rétt­ar­gæslu­mann. Skoðað „hvort lög­reglu­menn hafi gerst sekir um refsi­vert athæfi“.

Meint brot lög­reglu­manna á máls­með­ferð­ar­reglum við rann­sókn Hafn­ar­fjarð­ar­máls­ins svo­kall­aða hafa verið kærð til rík­is­sak­sókn­ara og hér­aðs­sak­sókn­ara. Þetta stað­festir Jóhann Bald­urs­son, lög­maður móð­ur­innar, í sam­tali við Stundina. 

Kæran til hér­aðs­sak­sókn­ara lýtur að tveimur atriðum lög­reglu­rann­sókn­ar­innar sem fram fór í árs­lok 2014 og árs­byrjun 2015; ann­ars vegar því að stúlk­unum hafi ekki verið skip­aður rétt­ar­gæslu­maður þegar rann­sókn hófst og hins vegar að lög­reglan hafi hunsað atriði sem komu fram í skýrslu­töku yfir sak­born­ingi og hafi gefið til­efni til sjálf­stæðrar rann­sóknar. 

Kæran til rík­is­sak­sókn­ara varðar atburða­rás­ina í des­em­ber 2016, þegar barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar til­kynnti föð­ur­inn til lög­reglu í þriðja sinn eftir að vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­brot höfðu komið fram í við­tölum með­ferð­ar­að­ila við börnin. Lög­reglan afgreiddi málið án rann­sóknar, skip­aði ekki rétt­ar­gæslu­mann og vís­aði mál­inu frá. Telur lög­mað­ur­inn ljóst að lög­reglu hafi verið óheim­ilt að ljúka mál­inu með þessum hætti.

Sama dag, þann 8. des­em­ber, tjáði lög­reglan barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar að emb­ættið ætl­aði að bíða eftir könn­un­ar­við­tali Barna­húss við aðra stúlk­una. Til­vís­un­ar­bréf barna­vernd­ar­nefndar til Barna­húss lá óhreyft í póst­hólfi Barna­húss í mánuð og um leið bil­aði tölvu­kerfi stofn­un­ar­innar. Á sama tíma hafði Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sam­band við starfs­mann barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar í sam­ráði við afa stúlkn­anna og tal­aði fyrir því að þær yrðu látnar umgang­ast föður sinn og fjöl­skyldu hans. Síðar boð­aði Bragi til fundar um mál­efni stúlkn­anna og lýsti efa­semdum um trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga sem borist höfðu frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi sem barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði sent stúlk­urnar til.

Stundin gerði þessum afskiptum Braga ítar­leg skil í vor, en atvika­lýs­ingin sem birt­ist í fréttum Stund­ar­innar byggði á einu skráðu sam­tíma­gögn­unum sem til eru um þau eins og síðar fékkst stað­fest með skýrslu Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins við athugun á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda.

Frétta­blaðið fjallar um kær­urnar vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar á for­síðu í dag.

Haft er eftir Kolbrúnu Bene­dikts­dóttur aðstoð­ar­sak­sókn­ara að emb­ættið hafi til með­ferðar mál sem snú­ist um „hvort lög­reglu­menn hafi gerst sekir um refsi­vert athæfi“ við með­ferð máls sem lauk fyrir nokkru síðan, þ.e. Hafn­ar­fjarð­ar­máls­ins. 

Höfðu áhyggjur af netnotkun

Rann­sóknin sem átti sér stað í kringum ára­mótin 2014/2015 hófst eftir að barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar fékk upp­lýs­ingar um net­notkun föð­ur­ins. Í ljós kom að mað­ur­inn var virkur á kyn­lífs­síð­unum Rape­bo­ard.com og FetLife.com. Þar kall­aði hann sig „Perra­barn“, birti myndir af sér og getn­að­ar­limi sínum og hak­aði við hvers konar myndefni hann hefði áhuga á og hvað hann væri for­vit­inn um. Fram kom að hann hefði meðal ann­ars áhuga á sifja­spelli og því að „stunda kyn­líf með dætrum sínum“ eins og það er orðað í til­kynn­ingu barna­vernd­ar­nefndar til lög­reglu.

Barna­vernd­ar­nefnd lýsti áhyggjum af net­notk­un­inni og benti á að mað­ur­inn væri faðir tveggja stúlkna sem væru í reglu­legri umgengni hjá honum á heim­ili afans og ömm­unnar þar sem önnur stúlkan gisti yfir­leitt uppi í rúmi hjá honum. „[Maðurinn] hefur einnig verið að spjalla á þessum síðum með stúlk­urnar í fang­inu,“ sagði í til­kynn­ingu barna­vernd­ar­nefndar til lög­reglu. Faðirinn sagði í sam­tali við Stundina í lok apríl að ekk­ert við net­notk­un­ina hefði bent til þess að hann vildi gera börnum sínum mein. Kyn­ferð­is­legu hugð­ar­efnin sem er hakað við á síð­unni end­ur­spegli orð­færi sem sé algengt í klámi en hafi ekk­ert raun­veru­lega með sifja­spell að gera. Lögregla kann­aði málið en fann ekk­ert sak­næmt og lét það niður falla. Kæran til hér­aðs­sak­sókn­ara lýtur að vinnu­brögðum lög­reglu við þessa rann­sókn. 

Leyndarmál um úlf

Mál stúlkn­anna kom aftur til kasta lög­reglu í nóv­em­ber 2015 vegna til­kynn­ingar frá heim­il­is­lækni eftir að önnur þeirra var sögð hafa kvartað undan verkjum í klofi. Faðirinn var yfir­heyrður, hér­aðs­læknir ræstur út og stúlk­urnar sendar á Barna­spít­ala Hrings­ins en engir áverkar fund­ust. Lögregla hætti rann­sókn máls­ins þann 11. apríl 2016 en til­kynnti að ef ný sak­ar­gögn kæmu fram kynni rann­sókn þess að verða tekin upp að nýju.

Í fram­hald­inu fóru stúlk­urnar í með­ferð hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingi sem hefur starfað á BUGL og nýtur trausts Barna­húss. Í við­töl­unum, þar sem stúlk­urnar fengu að tjá sig frjálst í máli og myndum, komu fram atriði sem barna­vernd­ar­nefnd taldi gefa til­efni til lög­reglu­rann­sóknar. Í byrjun nóv­em­ber 2016 greindi list­með­ferð­ar­fræð­ing­ur­inn barna­vernd­ar­nefnd frá því að svo virt­ist sem eitt­hvað óeðli­legt hefði gerst og að önnur stúlkan hefði verið meidd „í klof­inu“. Skömmu seinna sagði önnur stúlkan list­með­ferð­ar­fræð­ingnum frá því að „eitt­hvað óþægi­legt“ hefði gerst hjá pabba sínum, tal­aði um úlf sem réð­ist á hana og að úlf­ur­inn væri pabbi. Haft var eftir hinni stúlkunni að á nótt­inni gerð­ist eitt­hvað slæmt en hún mætti ekki segja hvað það væri. Það væri nefni­lega leynd­ar­mál og ef hún segði frá leynd­ar­mál­inu gæti hin systirin meiðst. 

Kæran 5. des­em­ber 2016 var lögð fram í kjöl­far við­tala list­með­ferð­ar­fræð­ings­ins. Lögregla vís­aði mál­inu frá án rann­sóknar og telur lög­maður móð­ur­innar að þar hafi lögum ekki verið fylgt. „Með eft­ir­gangs­munum fengum við upp­lýs­ingar og gögn frá lög­regl­unni sem sýna að mál­inu var vísað frá þremur dögum eftir að kæran var mót­tekin. Hún er lögð inn 5. des­em­ber 2016 en vísað frá 8. des­em­ber 2016,“ segir hann í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár