„Ég kom á engan hátt að ákvörðuninni“

Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir var stað­gengill dómsmála­ráðherra þegar ákveðið var að synja fjöl­miðlum og brota­þolum alfarið um gögn í máli Roberts Downey. Þá starfaði hún sem aðstoðar­maður innan­ríkis­ráðherra þegar Robert og Hjalti Sigurjón Hauksson fengu uppreist æru í fyrra.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, var stað­gengill Sigríðar Andersen í dómsmála­ráðuneytinu þegar ráðuneytið ákvað að synja alfarið upplýsinga­beiðnum um málefni Roberts Downey og annarra sem fengið hafa uppreist æru og veita fjöl­miðlum og brota­þolum mannsins engin af þeim gögnum sem óskað var eftir, ekki einu sinni með persónu­greinanlegum upplýsingum afmáðum.

„Ég var stað­gengill dómsmála­ráðherra þá daga sem spurt er um. Ég kom á engan hátt að ákvörðuninni,“ segir Þórdís Kolbrún í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um málið. Hún starfaði sem aðstoðar­maður Ólafar Nordal, þáverandi innan­ríkis­ráðherra, þegar Robert Downey og annar kynferðis­brotamaður, Hjalti Sigurjón Hauksson, fengu uppreist æru í september 2016. Eins og síðar kom í ljós var faðir forsætis­ráðherra á meðal þeirra sem veittu Hjalta meðmæli vegna umsóknarinnar.

„Ég var erlendis“

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra sagði á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis þann 19. september síðastliðinn að hún hefði enga aðkomu haft að umræddri ákvörðun ráðuneytisins. 

„Ég var erlendis á þessum vikum svo því sé haldið til haga,“ sagði Sigríður og vísaði til þess að ákvörðunin hefði verið tekin af sérfræðingum og embættis­mönnum. Tekið skal þó fram að ráðherrar bera ábyrgð á stjórnar­framkvæmdum öllum samkvæmt stjórnar­skrá.

Stundin sendi upplýsinga­fulltrúa dómsmála­ráðuneytisins fyrir­spurn fyrir rúmri viku og spurði hver hefði verið starfandi dómsmála­ráðherra dagana 16. til 22. júní, eftir að umræða vaknaði um mál Roberts Downey og ráðuneytið tilkynnti að engin gögn yrðu afhent.

Blaðinu barst svar nú á mánudag. Þar segir: „Forsætis­ráðuneytið sér um hvernig háttað er gegningum fyrir ráðherra þegar þeir eru fjar­verandi en samkvæmt upplýsingum dómsmála­ráðuneytis var dómsmála­ráðherra fjar­verandi á þeim tíma sem spurt er um og gegndi Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fyrir ráðherra á meðan.“

Þórdís stað­festir að hafa verið stað­gengill dómsmála­ráðherra á þessum tíma en segist þó ekki hafa átt neina aðkomu að ákvörðuninni. 

Lengra gengið í upplýsingaleynd en lög heimila

Allir lögfræðingar sem Stundin hefur rætt við um synjun ráðuneytisins á upplýsingunum telja ákvörðunina hafa verið óeðlilega og benda á að ráðuneytinu hefði verið í lófa lagið að afhenda gögnin með viðkvæmum persónu­upplýsingum afmáðum. „Strax þegar ég heyrði þetta og las umfjöllun frá föður einnar stúlkunnar fannst mér þetta mjög órökrétt afstaða. Ég átti bágt með að sjá í fljótu bragði hvaða lögmætu sjónarmið gætu mögulega réttlætt þessa synjun,“ sagði hæstaréttar­lögmaður sem Stundin ræddi við á dögunum. 

Leyndin yfir gögnum ráðuneytisins um mál Roberts Downey olli brota­þolum óþægindum. „Eigum við engan rétt á svörum? Hvers vegna er verið að refsa okkur eftir allt sem við höfum þurft að þola?“ spurði Nína Rún Bergs­dóttir, ein þeirra kvenna sem Robert Downey braut gegn, á Facebook. 

Þann 11. september komst úrskurðar­nefnd um upplýsingamál að þeirri niður­stöðu að dómsmála­ráðuneytið hefði brotið gegn upplýsinga­lögum og gengið lengra í upplýsinga­leynd en lög heimila þegar upplýsinga­beiðnum í máli Roberts Downey var synjað.

Skömmu síðar var greint frá því að Benedikt Sveinsson, faðir forsætis­ráðherra og flokks­formanns Sigríðar Andersen og Þórdísar Kolbrúnar, hefði undir­ritað meðmæli fyrir Hjalta Sigurjón, mann sem var dæmdur árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni nær daglega í 12 ár. Þetta voru sams konar upplýsingar og ráðuneytið hafði synjað fjöl­miðlum og brota­þolum um í máli Roberts Downey.

Í úrskurði úrskurðar­nefndar um upplýsingamál kemur fram að dómsmála­ráðuneytið hafi sérstak­lega vísað til þess, í rökstuðningi sínum fyrir því að halda gögnum um mál Roberts Downey leyndum, að samþykki Roberts lægi ekki fyrir. Hins vegar hefði ráðuneytið aldrei óskað eftir afstöðu Roberts í málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár