Segja vaxandi ójöfnuð ganga gegn vilja þjóðarinnar

Sérfræðinga­hópur á vegum verkalýðs­hreyfingarinnar segir að afleiðingar COVID-kreppunnar komi verr niður á fólki í lægri tekju­hópum. Slík þróun er til þess fallin að auka ójöfnuð, sem hópurinn segir að sé gegn vilja þjóðarinnar.

Búast má við að bæði tekju- og eigna­ójöfnuður aukist vegna kreppunnar sem fylgdi heims­faraldrinum, þar sem tekju­lægri voru líklegri til að missa vinnuna sína og lágir vextir hafa stutt við hraðar verð­hækkanir á fasteigna­markaði. Slík aukning ójöfnuðar er gegn vilja íslensku þjóðarinnar, samkvæmt skoðana­könnunum.

Þetta kemur fram í fimmtu skýrslu sérfræðinga­hóps verkalýðs­hreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif heims­faraldursins, sem birt var í dag. Þar beinir hópurinn, sem er leiddur af Höllu Gunnars­dóttur, framkvæmda­stjóra ASÍ, sérstak­lega sjónum sínum að áhrifum faraldursins á ójöfnuð hér á landi.

Flestir Íslendingar telja ójöfnuð vera of mikinn

Hópurinn vitnar í könnun á viðhorfum til ójöfnuðar sem framkvæmd var hér á landi, en hún var liður í aljþjóðlegu rannókninni International Social Survey Programme. Samvkæmt henni voru um 82 prósent Íslendinga sammála því að launa­munur hafi verið of mikill í fyrra. Innan við 7 prósent aðspurðra voru aftur á móti ósammála þeirri stað­hæfingu.

Einnig sagði meirihluti aðspurðra að það væri á ábyrgð stjórn­valda að draga úr launamun og töldu flestir þeirra að stjórn­völd hefðu ekki náð miklum árangri í þeim efnum hingað til.

Samkvæmt hópnum sýna rannóknir því að meirihluti Íslendinga telji launa­ójöfnuð vera of mikinn hér á landi og að þjóðin vilji ekki að ójöfnuður aukist.

Ójöfnuður í tekjum og eignum

Í skýrslunni er einnig farið yfir þróun tekju­ójöfnuðar, en hann hefur haldist nokkuð stöðugur á árunum 2010-2019, eftir að hafa aukist hratt á síðustu árunum fyrir hrun og svo fallið í kjölfar hrunsins. Samkvæmt skýrslu­höfundum er líklegt að ójöfnuður hafi svo aukist aftur á undan­förnum mánuðum, þar sem tekju­lágir séu almennt líklegri til að missa störf sín og að fyrir­liggjandi upplýsingar bendi til þess að yfir­standandi kreppa sé engin undan­tekning á því.

Til viðbótar við ójöfnuð í tekjum bætir hópurinn við að eigna­ójöfnuður sé líklegur til að hafa aukist, þar sem verð hluta­bréfa og fasteigna hefur aukist töluvert. Með hærra eigna­verði eykst aðstöðu­munurinn á milli eigna­fólks og þeirra sem hafa minni skráðar eignir. Niður­staðan af þessari þróun í tekju- og eigna­ójöfnuði er aukið misræmi í afkomu ólíkra samfélags­hópa, samkvæmt skýrslu­höfundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár