Óvenjumikið fannst af klæðnaði í Bakkavík á Seltjarnarnesi

Ýmislegt rekur á land við Íslands­strendur en Umhverf­is­stofnun sér um að safna rusli, flokka og fjar­lægja, á sjö ströndum víðs­vegar um landið. Hlutir tengdir sjáv­ar­út­vegi og plast var algeng­asta ruslið í ár.

Hlutir tengdir sjáv­ar­út­vegi og plast hefur verið algeng­asta ruslið sem finnst hefur við kerf­is­bundna vöktun stranda á Íslandi í ár. Í apríl fannst óvenju­mikið af klæðn­aði í Bakkavík á Sel­tjarn­ar­nesi.

Þetta kemur fram á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Plast­úr­gangur getur haft gríð­ar­legar afleið­ingar á sjáv­ar­lífið og geta líf­verur fest sig í gömlum netum, tógum eða plast­filmum, kafnað eða étið ýmiss konar plast. Plast­úr­gang má finna um nær allan sjó og hefur hann borist til fjar­lægra staða eins og heim­skaut­anna og djúp­sjávar heims­haf­anna.

Sjö vöktunarstrandir víðsvegar um landið

Til að fylgj­ast með þróun á magni og sam­setn­ingu þess rusls sem berst á strendur Íslands hefur Umhverf­is­stofnun valið ákveðin strand­svæði til reglu­legrar vökt­unar. Þar er allt rusl tínt og flokkað sam­kvæmt staðl­aðri aðferða­fræði, að því er fram kemur hjá stofn­un­inni.

Vökt­un­ar­strandir eru sjö tals­ins en nýlega bætt­ist við ströndin Ýsu­hvammur í nágrenni Reyð­ar­fjarðar en hún er sú eina á Aust­ur­landi. Samið hefur verið við Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands um að vakta strönd­ina þrisvar sinnum á ári. Starfs­maður Umhverf­is­stofn­unar aðstoð­aði starfs­menn Nátt­úru­stof­unnar við fyrstu vökt­un­ina.

Strandir í vöktun Umhverf­is­stofn­unar eru Surtsey, Bakkavík á Sel­tjarn­ar­nesi, Búðavík á Snæ­fells­nesi, Rauða­sandur, Rekavík bak Höfn á Horn­ströndum, Víkur á Skaga­strönd og Ýsu­hvammur.

Hluti af aðgerðaráætlun OSPAR

Fram kemur hjá Umhverf­is­stofnun að þau hafi byrjað að vakta rusl á ströndum sum­arið 2016, sam­kvæmt aðferða­fræði og leið­bein­ingum frá OSPAR sem er samn­ingur um verndun haf­rýmis Norð­austur-Atl­ants­hafs­ins.

Til­gangur vökt­un­ar­innar er að finna upp­runa rusls á ströndum, hvaða flokkar rusls safn­ast mest fyrir, meta magn sem safn­ast fyrir yfir ákveðið tíma­bil og að fjar­lægja ruslið. Með vökt­un­inni upp­fyllir Ísland hluta af aðgerð­ar­á­ætlun OSPAR, um að draga úr skað­semi úrgangs í hafi og á ströndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár