Mun plastið ná yfirhöndinni í sjónum?

Plast­úr­gangur getur haft gríð­ar­legar afleið­ingar á sjáv­ar­lífið og geta líf­verur fest sig í gömlum netum, tógum eða plast­filmum, kafnað eða étið ýmis konar plast. Mik­il­vægt er að geta greint upp­runa plast­s­ins til að hægt sé að beina sjónum í rétta átt.

Ef áfram heldur sem horfir kann plast í heims­höf­unum að vega meira en fiski­stofnar árið 2050 en á síð­ustu 25 árum hefur plast­fram­leiðsla í heim­inum rúm­lega þre­fald­ast. Plast­úr­gang er að finna um nær allan sjó og hefur hann borist til fjar­lægra staða eins og heim­skaut­anna og djúp­sjávar heims­haf­anna.

Þetta kemur fram á vef­síðu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar en hún hefur á und­an­förnum árum skráð kerf­is­bundið magn sjá­an­legs plasts sem kemur í veið­ar­færi við rann­sókna­veiðar stofn­un­ar­innar.

Plast leys­ist ekki upp heldur brotnar það niður í smærri og smærri agnir. Áhrifin sem plast hefur á umhverfi sjávar eru bæði marg­breyti­leg og afdrifa­rík.

[adspot]

Getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarlífverur

Plast­úr­gangur endar að stórum hluta í heims­höf­unum og getur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir sjáv­ar­líf­verur. Þær geta fest sig í gömlum netum, tógum eða plast­filmum, kafnað eða étið ýmis konar plast í mis­gán­ingi, sam­kvæmt Haf­rann­sókn­ar­stofnun.

Lítið er enn sem komið vitað um það hvernig örplast berst um flók­inn fæðu­vef heims­haf­anna en örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5 milli­metrar að þver­máli. Örplast getur ann­ars vegar verið fram­leitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrti­vörum, eða örplast sem verður til við nið­ur­brot, til að mynda úr dekkj­um, inn­kaupa­pokum eða fatn­að­i.

Samkvæmt stofn­un­inni hafa rann­sóknir sýnt að plast­agnir hafa áhrif á ýmsar sjáv­ar­líf­verur meðal ann­ars á efna­upp­töku á frumu­stigi, eru bólgu­valdar, valda minnkun á fæðu­námi og hafa áhrif á inn­kirtla­starf­semi. Þetta er meðal ann­ars vegna þess að plast­agnir geta inni­haldið eit­ur­efni sem notuð eru við fram­leiðsl­una til að tryggja sveigju, var­an­leika eða eld­tefj­andi efni, eins og áður segir.

Megnið af plastinu tengt sjávarútvegi

Samkvæmt Haf­rann­sókn­ar­stofnun er mik­il­vægt að geta greint upp­runa plast­s­ins til að hægt sé að beina sjónum í rétta átt þegar kemur að því að fyr­ir­byggja að plast ber­ist í hafið. Megnið af því plasti sem kemur í veið­ar­færi við rann­sókna­veiðar stofn­un­ar­innar er tengt sjáv­ar­út­vegi.

Algeng­ast er að finna spotta af ýmsu tagi og neta­dræsur en einnig alls kyns brot úr fiski­körum og slíku. Rusl af öðrum upp­runa en sjáv­ar­út­vegi kom í minna mæli í veið­ar­færi en var í þó nokkrum þétt­leika á sumum stöðum, sam­kvæmt stofn­un­inni.

[box]

Valkvíði neytandans

Plast­notkun hefur orðið ákveðin tákn­mynd þeirra vanda­mála sem mann­kynið stendur frammi fyrir og ekki er óal­gengt að rekast á myndir af urð­un­ar­stöðum fullum af plast­pokum, maga sjáv­ar­dýra útbelgda af plast­úr­gangi og fuglum með kippuplast fast um háls­inn með fréttum eða póstum á sam­fé­lags­miðlum. Raun­veru­leik­inn vekur því ugg og ákveð­innar við­horfs­breyt­ingar gætir varð­andi umhverf­is­vernd og lofts­lags­mál á síð­ustu árum.

Margar spurn­ingar vakna þegar að því kemur að ákveða hvernig best sé að snúa þess­ari þróun við – er það til að mynda ein­ungis stjórn­valda og fyr­ir­tækja að setja lög og reglur fyrir fólk að fylgja eða getur hver og ein mann­eskja haft sín áhrif?

[links]Við flóknum vanda­málum eru oft flókin svör og er plast­vand­inn eitt þeirra vanda­mála. Ein skila­boð sem neyt­endur hafa fengið er að sleppa því að kaupa plast­poka í versl­unum og nota papp­írs- eða fjöl­nota poka í stað­inn til að bera vör­urnar heim. Þetta virð­ist þó ekki vera svo ein­falt þegar fleiri þættir eru skoð­aðir eins og kolefn­is­spor pokanna og þegar kostir og ókostir þeirra eru bornir saman byrja málin að flækj­ast.

Ekki er auð­velt að svara því hvort papp­írs­pokar eða plast­pokar séu umhverf­is­vænni, eða þá fjöl­nota pokar. Banda­ríska blaðið The New York Times fjall­aði um málið í mars síð­ast­liðnum og þar er bent á að plast­pokar, sem grotna margir ekki niður fyrr en að árhund­ruðum loknum, geti skapað mikið úrgangs­vanda­mál. Hins vegar útheimti fram­leiðsla papp­írs­poka meiri orku og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem sé ekki gott út frá lofts­lags­breyt­ingum.

[adspot]

End­ur­nýt­an­legir pokar geti þannig verið ágætis mála­miðlun ef passað er upp á þá og þeir not­aðir mikið. Það sem sett sé í pok­ann hafi þó á end­anum meiri áhrif á umhverfið en hvaða teg­und af poka not­aður sé.

Vandinn við plast­pok­ana er sá að þeir enda iðu­lega á rusla­haug­unum og aðeins örlít­ill hluti þeirra er nokkurn tím­ann end­urunn­inn. Meiri­hluti þeirra er því urð­aður, þar sem það getur tekið þá allt að því þús­und ár að grotna niður. Jafn­framt fylgir plast­pok­anum sá galli að hann er léttur og fýkur auð­veld­lega út í nátt­úr­una og veldur þar miklum skaða.

Pappírspokinn ekki gallalaus

Papp­írs­pok­inn er ekki heldur galla­laus þrátt fyrir að grotna hraðar niður en plast­pok­inn. Í grein The New York Times er bent á að þegar litið er hlut­ina út frá útblæstri þá séu papp­írs­pok­arnir mun verri en plast­pok­arnir. Þó svo að papp­írs­pokar séu úr trjám, sem séu tækni­lega séð end­ur­nýj­an­leg auð­lind, þá útheimti tals­vert meiri orku að búa til kvoðu og fram­leiða papp­írs­poka en að búa til einnota plast­poka úr olíu.

Árið 2011 gerði Umhverf­is­stofnun Bret­lands rann­sókn á líf­tíma mis­mun­andi poka­teg­unda þar sem horft var til hvers ein­asta fram­leiðslu­þáttar. Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar þarf að að end­ur­nota papp­írs­poka að minnsta kosti þrisvar til að umhverf­is­á­hrifin verði jafn­mikil og af því að nota plast­poka úr pólý­etý­leni einu sinni. Og ef plast­pokar eru not­aðir end­ur­tekið þá koma þeir enn betur út.

Auð­veld­ara er að end­ur­vinna og jarð­gera papp­írs­poka heldur en plast­poka en nið­ur­staða bresku rann­sókn­ar­innar var sú að jafn­vel þessar aðgerðir höfðu lítið að segja í stóra sam­heng­inu. Papp­írs­pokar koma út sem lak­ari kostur út frá lofts­lags­breyt­ingum, nema þeir séu not­aðir oft.

Fjölnota pokar sjálfbærir ef notaðir oft

Sama breska rann­sóknin skoð­aði líka fjöl­nota poka, sem og þyngri og end­ing­ar­betri plast­pokar eða bómull­ar­pokar. Nið­ur­staðan var sú að þessir pokar eru aðeins sjálf­bærir ef þeir eru not­aðir oft. Fram­leiðsla bómull­ar­poka er þannig engan veg­inn kostn­að­ar­laus. Bómull­ar­ræktun útheimtir mikla orku, land­svæði, áburð og skor­dýra­eitur og getur valdið alls kyns umhverf­is­á­hrifum, allt frá útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til nit­ur­meng­unar í renn­andi vatni.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að neyt­andi þyrfti að end­ur­nýta bómull­ar­pok­ann sinn 131 sinni til að hafa minni áhrif á hlýnun jarðar en léttur plast­poki sem er aðeins not­aður einu sinni. Svo er það breyti­legt eftir fram­leið­endum hvort nota þyrfti hina end­ing­ar­betri plast­poka fjórum eða allt að ell­efu sinnum til að bæta fyrir þau lofts­lags­á­hrif sem fram­leiðsla þeirra kostar umfram hina einnota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár