Tilvistarkrísa hins góða neytanda

Plastið er orðið tákn þeirrar umhverf­is­vár sem íbúar jarð­ar­innar glíma við og hefur gríð­ar­leg vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað á síð­ustu miss­erum og árum. Með miklu upp­lýs­inga­flæði geta ákvarð­anir þeirra sem vilja vera með­vit­aðir neyt­endur flækst fyrir þeim.

Í flóknum heimi hraðra breyt­inga getur reynst erfitt að fóta sig sem neyt­andi – og hlýtur fólk að velta því fyrir sér hver áhrif þeirra eigin neyslu og lifn­að­ar­hátta séu. Plast­notkun hefur orðið ákveðin tákn­mynd þeirra vanda­mála sem mann­kynið stendur frammi fyrir og ekki er óal­gengt að rekast á myndir af urð­un­ar­stöðum fullum af plast­pokum, maga sjáv­ar­dýra útbelgda af plast­úr­gangi og fuglum með kippuplast fast um háls­inn með fréttum eða póstum á sam­fé­lags­miðlum. Raun­veru­leik­inn vekur því ugg og ákveð­innar við­horfs­breyt­ingar gætir varð­andi umhverf­is­vernd og lofts­lags­mál á síð­ustu árum.

Margar spurn­ingar vakna þegar að því kemur að ákveða hvernig best sé að snúa þess­ari þróun við – er það til að mynda ein­ungis stjórn­valda og fyr­ir­tækja að setja lög og reglur fyrir fólk að fylgja eða getur hver og ein mann­eskja haft sín áhrif? Við flóknum vanda­málum eru oft flókin svör og er plast­vand­inn eitt þeirra vanda­mála. Ein skila­boð sem neyt­endur hafa fengið er að sleppa því að kaupa plast­poka í versl­unum og nota papp­írs- eða fjöl­nota poka í stað­inn til að bera vör­urnar heim. Þetta virð­ist þó ekki vera svo ein­falt þegar fleiri þættir eru skoð­aðir eins og kolefn­is­spor pokanna og þegar kostir og ókostir þeirra eru bornir saman byrja málin að flækj­ast.

Tekur allt að því þúsund ár að grotna niður

Ekki er auð­velt að svara því hvort papp­írs­pokar eða plast­pokar séu umhverf­is­vænni, eða þá fjöl­nota pokar. Banda­ríska blaðið The New York Times fjall­aði um málið í mars síð­ast­liðnum og þar er bent á að plast­pokar, sem grotna margir ekki niður fyrr en að árhund­ruðum loknum, geti skapað mikið úrgangs­vanda­mál. Hins vegar útheimti fram­leiðsla papp­írs­poka meiri orku og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem sé ekki gott út frá lofts­lags­breyt­ingum.

End­ur­nýt­an­legir pokar geti þannig verið ágætis mála­miðlun ef passað er upp á þá og þeir not­aðir mikið. Það sem sett sé í pok­ann hafi þó á end­anum meiri áhrif á umhverfið en hvaða teg­und af poka not­aður sé.

Vandinn við plast­pok­ana er sá að þeir enda iðu­lega á rusla­haug­unum og aðeins örlít­ill hluti þeirra er nokkurn tím­ann end­urunn­inn. Meiri­hluti þeirra er því urð­aður, þar sem það getur tekið þá allt að því þús­und ár að grotna niður. Jafn­framt fylgir plast­pok­anum sá galli að hann er léttur og fýkur auð­veld­lega út í nátt­úr­una og veldur þar miklum skaða.

Pappírspokinn ekki gallalaus

Papp­írs­pok­inn er ekki heldur galla­laus þrátt fyrir að grotna hraðar niður en plast­pok­inn. Í grein The New York Times er bent á að þegar litið er hlut­ina út frá útblæstri þá séu papp­írs­pok­arnir mun verri en plast­pok­arnir. Þó svo að papp­írs­pokar séu úr trjám, sem séu tækni­lega séð end­ur­nýj­an­leg auð­lind, þá útheimti tals­vert meiri orku að búa til kvoðu og fram­leiða papp­írs­poka en að búa til einnota plast­poka úr olíu.

Árið 2011 gerði Umhverf­is­stofnun Bret­lands rann­sókn á líf­tíma mis­mun­andi poka­teg­unda þar sem horft var til hvers ein­asta fram­leiðslu­þáttar. Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar þarf að að end­ur­nota papp­írs­poka að minnsta kosti þrisvar til að umhverf­is­á­hrifin verði jafn­mikil og af því að nota plast­poka úr pólý­etý­leni einu sinni. Og ef plast­pokar eru not­aðir end­ur­tekið þá koma þeir enn betur út.

Auð­veld­ara er að end­ur­vinna og jarð­gera papp­írs­poka heldur en plast­poka en nið­ur­staða bresku rann­sókn­ar­innar var sú að jafn­vel þessar aðgerðir höfðu lítið að segja í stóra sam­heng­inu. Papp­írs­pokar koma út sem lak­ari kostur út frá lofts­lags­breyt­ingum, nema þeir séu not­aðir oft.

Fjölnota pokar sjálfbærir ef notaðir oft

Sama breska rann­sóknin skoð­aði líka fjöl­nota poka, sem og þyngri og end­ing­ar­betri plast­pokar eða bómull­ar­pokar. Nið­ur­staðan var sú að þessir pokar eru aðeins sjálf­bærir ef þeir eru not­aðir oft. Fram­leiðsla bómull­ar­poka er þannig engan veg­inn kostn­að­ar­laus. Bómull­ar­ræktun útheimtir mikla orku, land­svæði, áburð og skor­dýra­eitur og getur valdið alls kyns umhverf­is­á­hrifum, allt frá útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til nit­ur­meng­unar í renn­andi vatni.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að neyt­andi þyrfti að end­ur­nýta bómull­ar­pok­ann sinn 131 sinni til að hafa minni áhrif á hlýnun jarðar en léttur plast­poki sem er aðeins not­aður einu sinni. Svo er það breyti­legt eftir fram­leið­endum hvort nota þyrfti hina end­ing­ar­betri plast­poka fjórum eða allt að ell­efu sinnum til að bæta fyrir þau lofts­lags­á­hrif sem fram­leiðsla þeirra kostar umfram hina einnota.

Plastpokafrumvarpið fyrst og fremst táknræn aðgerð

Mælt hefur verið fyrir frum­varpi á Alþingi til laga um breyt­ingu á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir sem varðar notkun burð­ar­poka. Lagt er til í frum­varp­inu að frá og með 1. júlí næst­kom­andi verði óheim­ilt að afhenda alla burð­ar­poka, þar með talið burð­ar­poka úr plasti, án end­ur­gjalds á sölu­stöðum vara og skuli gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun. Frá og með 1. jan­úar 2021 verði síðan óheim­ilt fyrir versl­anir að afhenda burð­ar­poka úr plasti, hvort sem er með eða án gjalds. Bannið sjálft á þannig við um plast­poka en ekki burð­ar­poka úr öðrum efnum.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur sagt plast­poka­frum­varpið fyrst og fremst vera tákn­ræna aðgerð, því hún snerti líf okkar allra. Hann bendir á að vand­inn sé víð­tæk­ari, því vör­urnar sem fólk ber heim í plast­pok­unum séu einnig iðu­lega í plast­um­búðum. Enn fremur bendir hann á að um þriðj­ungi mat­væla í heim­inum sé hent, þannig að því megi segja að þriðj­ungur inni­halds pokans muni enda í rusl­inu. Þannig sé plast­poka­frum­varpið ein­ungis lít­ill hluti af „stóra plast­vand­anum“.

Að auki tók ráð­herr­ann á móti til­lögum í haust sem kveða meðal ann­ars á um að setja úrvinnslu­gjald á plast­um­búðir til þess að reyna að draga úr þeim eins og hægt er. Jafn­framt komu fram til­lögur um að sam­ræma og skylda flokkun. Guð­mundur Ingi telur það grund­vall­ar­at­riði í nútíma­sam­fé­lagi að fólk fari betur með hluti og að úrgangur sé nýttur sem hrá­efni í frek­ari fram­leiðslu og til verð­mæta­sköp­unar.

„Við þurfum fyrst og fremst að huga að því hvernig við getum tak­markað sem mest það sem fer inn í keðj­una, þannig að úrgang­ur­inn verði minni. En við verðum einnig að nýta hann eins vel og við getum. Við Íslend­ingar höfum verið svo­lítið hrædd við að tala um neyslu,“ segir Guð­mundur Ingi og rifjar upp orð­ræð­una fyrir hrunið 2008. „Ef ein­hver sagði orðið græðgi þá var það eitt­hvað sem ekki mátti taka sér í munn því þá var maður ekki maður með mönnum. Maður var algjör tuð­ari og aft­ur­halds­seggur; að hamla fram­förum og allt þetta. En ég held að við séum komin á aðeins annan stað núna og það er algjör­lega nauð­syn­legt að sam­band okkar og neysl­unnar sé end­ur­skoðað.“

Lífræna baðmullin verst

Þegar við færum okkur yfir í stóru spurn­ing­arnar varð­andi reglur, neyslu og val neyt­enda þá spyrja margir sig hvort aðgerðir á borð við plast­poka­bannið skipti máli í stóra sam­heng­inu við lofts­lags­mál. Guðni Elísson, pró­fessor í bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands, hefur rann­sakað lofts­lags­mál til fjölda ára og segir hann í sam­tali við Kjarnann að stutta svarið við þeirri spurn­ingu sé nei.

„Það mætti hugs­an­lega flækja þetta frekar og segja að ef plast­poka­bann yrði að almennri reglu um allan heim þá værum við í raun að skapa nýjan vanda vegna þess að heild­ar­um­hverf­is­á­hrifin af plast­poka­fram­leiðslu eru miklu minni en til dæmis af papp­írs­pokum, svo við tölum ekki um fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull. Samkvæmt skýrslu sem danska umhverfis- og mat­væla­ráðu­neytið lét vinna eru papp­írs­pokar 40 sinnum frek­ari á nátt­úru­legar auð­lindir en plast­pokar og taupok­arnir 7000 til 20000 sinnum verri. Verst er líf­ræna baðmullin, því hún kallar ein­fald­lega á orku­frek­ari fram­leiðslu, meira pláss, o.s.frv.,“ segir hann.

Ef við tryggðum það að öllu plasti væri fargað eftir kúnst­ar­innar reglum ættu allir fremur að nota plast­poka en til dæmis fjöl­nota burð­ar­poka úr baðm­ull.

Reglan ætti að vera að nota hvern einnota poka þrisvar, fjórum sinnum. „Ef við not­uðum alla plast­poka nokkrum sinnum og förg­uðum þeim rétt væri hægt að tvö- til þre­falda töl­urnar frá danska umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Og það má árétta að í dönsku skýrsl­unni er gert ráð fyrir að plastið sé brennt í lokin sem er ekk­ert endi­lega besta leiðin,“ segir hann.

Getur skapað falska umhverfisvitund

Guðni bendir á að kost­ur­inn við plast­poka­bannið geti verið sá að það veki fólk til vit­undar um umhverf­is­málin en ef eina nið­ur­staðan sé sú að við fyllum taupok­ana okkar af sama ákaf­anum og áður sé þetta sýnd­ar­gjörn­ingur, sem skapi falska umhverf­is­vit­und. Aðal­at­riðið sé að minnka neyslu, draga úr löng­un­inni til að fylla alla poka af dóti sem vel hægt er að lifað án. „En auð­vitað er þetta flókn­ara en svo að hægt sé að svara þessu í svona stuttu máli og þarf að slá alls kyns varnagla.“

Þegar Guðni er spurður út í þá tog­streitu sem mynd­ast getur milli umhverf­is­sjón­ar­miða og lofts­lags­mála þá segir hann að lofts­lags­málin séu auð­vitað umhverf­is­vernd­ar­mál og plast­notkun sé hnatt­rænn vandi. „En auð­vitað breyt­ast áhersl­urnar eftir því sem við víkkum sjón­deild­ar­hring­inn, frá til dæmis stað­bund­inni land­vernd yfir í spurn­ingar um almennar aðgerðir í lofts­lags­málum. Þannig eru margir land­vernd­ar­sinnar umhverf­is­sóðar og um leið brjóta þeir gegn því landi sem þeir segj­ast ætla að vernda. Margir sem láta sig vernd hálend­is­ins varða eru til dæmis með risa­vaxin sót­spor og taka þannig beinan þátt í eyð­ingu lands­ins sem þeir hafa svarið að verja.“

Hann telur að ekki sé hægt að kalla sig umhverf­is­vernd­ar­sinna og taka á engan hátt ábyrgð á sótsporum sínum eins og þurfi að gera með því að tak­marka flug og kjöt­neyslu. „Mér hefur sýnst áherslan vera sú að tryggja að land­inu sé ekki breytt í ein­hvers konar fram­leiðslu­land og leggja til dæmis fremur áherslu á þjón­ustu. Fara frá stór­iðju yfir í túrisma.“ Engu sé breytt með því að horfa á þetta gamla við­horf sem sé því miður allt of ráð­andi.

„En ef rúmur millj­arður flýgur á hverju ári heims­horna á milli til þess að „njóta“ breytir hann jörð­inni á stór­tæk­ari hátt en nokkur uppi­stöðu­lón myndu t.d. gera, þótt vissu­lega auðgi menn líf sitt líka með ferða­lögum. Túrismi er stór­iðja skyn­fær­anna og hann er var­inn af djúp­stæðri þörf eftir neyslu, upp­lif­unum og auð­vitað af skilj­an­legri þörf fyrir að kom­ast út úr nærum­hverf­inu. Íslensk umhverf­is­vernd­ar­stefna hefur fók­userað allt of mikið á það að breyta Íslandi úr fram­leiðslu­svæði yfir í stað þar sem neysla og upp­lifun fer fram. Land­vernd var t.d. styrkt af flug­fé­lag­inu Wow air sem er í raun erfitt að skilja ef við skil­greinum Land­vernd sem umhverf­is­vernd­ar­sam­tök,“ segir Guðni.

Flug skilur eftir sig gríðarlega stórt kolefnisspor.
Flug skilur eftir sig gríð­ar­lega stórt kolefn­is­spor.

Plast vandræðavara

Elva Rakel Jóns­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, segir að með­vit­und varð­andi þessi mál megi ekki tak­markast við burð­ar­pok­ann. En þrátt fyrir það lítur hún svo á að litlu aðgerð­irnar, á borð við plast­poka­bannið, skipti einnig gríð­ar­legu máli. „Því ef við ráðum ekki við litlu aðgerð­irnar þá ráðum við heldur ekki við þær stóru,“ segir Elva en hún telur að ekki þurfi sér­stak­lega að rök­ræða bannið, það sé borð­leggj­andi.

Hún segir enn fremur að plast sé vand­ræða­vara, því bæði hafi það sínar góðu og slæmu hliðar. Plast sé stöðugt efni og létt í flutn­ingi og því gott hvað það varðar en ein­stak­lega óhent­ugt þegar það er notað ein­ungis einu sinni. „Við þurfum að breyta sölu­hegðun þannig að ekki séu til boða allar þessar umbúðir,“ segir Elva. „Vanda­málið er að við ofnotum plastið og fram­leiðum einnota vörur. Við þurfum að búa til vörur sem end­ast.“

Elva bendir jafn­framt á að plast sé for­senda þess sam­fé­lags sem við búum við í dag. Það sé notað í hinum ýmsu raf- og örygg­is­tækjum og gagn­ist vel þegar það er nýtt með skyn­sömum hætti.

Vanda­málið er að við ofnotum plastið og fram­leiðum einnota vörur. Við þurfum að búa til vörur sem end­ast.
Mynd: Wiki Commons
Mynd: Wiki Commons

Samgöngur, matur og vörur með mestan útblástur

Jukka Heinonen, pró­fessor við umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild, hefur kannað hvernig neyslu­drifið kolefn­is­spor Íslend­inga dreif­ist um heims­byggð­ina. Í rann­sókn Jukka frá árinu 2017 kemur fram að við útreikn­ing á kolefn­is­spori neyslu íslenskra heim­ila hafi gögn um útgjöld þeirra meðal ann­ars verið tengd við erlendan gagna­banka um vist­spor landa. Í ljós kom að með­al­ár­skolefn­is­spor vegna neyslu íslenskra heim­ila reynd­ist áþekkt því sem ger­ist meðal þjóða Evr­ópu­sam­bands­ins – þrátt fyrir sér­stöðu Íslands í orku­málum. Sam­göngur, matur og vörur voru þeir flokkar sem voru ábyrgir fyrir stærstum hluta útblást­urs íslenskra heim­ila.

Rann­sóknin sýndi einnig að um 71 pró­sent útblást­urs heim­ila var vegna inn­fluttra vara og reyn­ist útblást­urs­byrðin vegna neyslu íslenskra heim­ila mest í þró­un­ar­ríkjum. „Nið­ur­stöð­urnar sýna að þörf er á víð­tæk­ari nálgun á útreikn­ingi á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en áður auk þess sem stefnu­mótun verður að taka mið af honum, bæði á Íslandi og ann­ars staðar í heim­inum. Rann­sóknin getur því nýst til fram­tíðar fyrir vel­meg­andi þjóðir sem vinna að lág­mörkun útblást­urs,“ sagði Jukka þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru kynntar á sínum tíma.

Íslenskt samfélag býr við ákveðna lág-kolefna tálsýn

Jukka segir í sam­tali við Kjarnann að rann­sóknin eigi enn vel við í dag. „Íslenskt sam­fé­lag „útvistar“ meiri­hluta los­unar og býr við ákveðna lág-kolefna tál­sýn. Þetta á jafn­vel enn betur við í Reykja­vík, þar sem lítil fram­leiðsla á sér stað. Borgin til­kynnir mjög litla losun en áhrif hennar eru mjög mikil í alþjóð­legum sam­an­burði.“

Jukka bendir á að mat­væli séu stór hluti af losun Íslend­inga og eru þau í reynd í öðru sæti á eftir sam­göngum. „Þessi losun á sér stað að mestum hluta utan land­stein­anna og í flutn­ingi mat­væl­anna til Íslands. Á Íslandi fer fram kjöt­fram­leiðsla, sem losar mikið sama hvar. Það er algengur mis­skiln­ingur að til dæmis íslenska lambið sé á ein­hvern hátt fram­leitt sjálf­bært þar sem raunin er sú að lofts­lags­á­hrifin eru ótengd stað­bundnum aðstæðum á Íslandi.“

Hann telur að kolefn­is­spor vegna mat­væla myndi minnka til muna með græn­met­ismið­uðu matar­æði og sér­stak­lega með stað­bund­inni græn­met­is­fram­leiðslu sem kæmi í stað­inn fyrir kjöt­fram­leiðslu.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið undanfarið ár