Engar reglur komu í veg fyrir að faðir Bjarna Benediktssonar keypti hluti í Íslandsbanka

Fjármála­ráðuneytið segir að ekkert í lögum og reglum hindri að ráðherrar eða nánir fjölskyldu­meðlimir þeirra kaupi hlut í ríkis­bönkum. Umgjörð sölu­ferlisins hafi verið „hönnuð til þess að koma í veg fyrir að ráðherra gæti hyglað einstökum bjóðendum“.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Engar sérstakar reglur gilda um viðskipti ráðherra eða fjölskyldu­meðlima hans í tengslum við sölu ríkis­sjóðs á eignar­hlutum í fjármála­fyrirtækjum. Þetta segir í minnis­blaði fjármála- og efnahags­ráðuneytisins til fjár­laganefndar Alþingis vegna fyrir­spurna nefndar­manna til ráðuneytisins um sölu á 22,5 prósent hlut í Íslands­banka 22. mars síðastliðinn fyrir 52,65 milljarða króna. Minnis­blaðið var gert opinbert í dag.

Á meðal kaupenda var félagið Hafsilfur, í eigu Benedikts Sveins­sonar. Benedikt er faðir Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra og formanns Sjálfstæðis­flokksins, sem kom fram fyrir hönd ríkisins í tengslum við söluna á hlutnum í Íslands­banka.

Fjár­laganefnd spurði hvaða reglur giltu um viðskipti ráðherra sjálfs eða náinna fjölskyldu­meðlima þegar ráðherra kæmi fram fyrir hönd ríkisins í tengslum við sölu á eignar­hlut þess í fjármála­fyrirtækjum og hvort formlegar reglur hefðu verið settar um slík viðskipti?

Í svari ráðuneytisins segir, til viðbótar við það að engar sérstakar reglur séu til staðar, komi reglur sem tengist meðferð trúnaðar­upplýsinga af hálfu stjórn­valda, siða­reglur ráðherra, ákvæði laga um aðgerðir gegn markaðs­svikum, reglur ráðuneytis um meðferð innherja­upplýsinga og viðskipti starfs­manna með fjármála­gerninga, ekki í veg fyrir þátttöku tiltekinna aðila í opnu söluferli. Skipti þar engu hvort um sé að ræða sölu með tilboðs­fyrir­komulagi eða með full markaðs­settu útboði. „Að því er varðar hæfis­reglur stjórnsýslu­réttar voru engar aðstæður fyrir hendi sem voru til þess fallnar að valda vanhæfi ráðherra, með vísan til þess hver aðkoma ráðherra og ráðuneytisins var að fyrir­komulaginu og þess að Banka­sýsla ríkisins var framkvæmdar­aðili sölunnar fyrir hönd ríkisins.“

Hannað til að koma í veg fyrir að ráðherra gæti hyglað einstökum bjóðendum

Skipting á ábyrgð og verkefnum milli ráðherra og Banka­sýslu ríkisins komi skýrt fram í lögum um sölu eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum. „Þessari skiptingu er ætlað að tryggja að hlutlægni og jafnræði séu ráðandi við sölu á eignar­hlutum. Af hálfu ráðherra var tekin ákvörðun um magn hluta­bréfa sem skyldi selt, verð sem skyldi tekið og viðmið um skiptingu milli lykil­flokka bjóðenda, þ.e. að horft yrði til þess að skerða langtíma­fjárfesta minna en skammtíma­fjárfesta ef umfram eftir­spurn yrði í útboðinu. Ekki var tekin afstaða til tiltekinna kaupenda.“

Athugun á bjóðendum hafi farið fram í fjarlægð frá ráðuneytinu og engin málefnaleg ástæða hafi verið fyrir ráðuneytið til að kanna hver væri á bak við hvert tilboð. „Umgjörð sölu­ferlisins var hönnuð til þess að koma í veg fyrir að ráðherra gæti hyglað einstökum bjóðendum á kostnað annarra og að ómálefnaleg sjónarmið gætu ráðið för. Það markmið náðist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár