Vonandi hægt að aflétta nokkuð hratt á næstu vikum

Helsta áskorunin í faraldrinum nú er sá fjöldi ferða­manna sem hingað er að koma sem er umfram spár. Breyta gæti þurft fyrir­komulagi á landa­mærum því heildar­geta til skimunar takmarkast við 3-4.000 sýni á dag.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir Mynd: Almannavarnir

Góðar líkur eru á því að okkur sé að takast að ná utan um þær hópsýkingar sem hafa verið í gangi innanlands undan­farnar vikur. „En við þurfum að muna að veiran er enn í samfélaginu og að við þurfum að fara áfram varlega.“

Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir á upplýsinga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. 28 hafa greinst með veiruna innanlands síðustu sjö daga og hafa aðeins tveir þeirra verið utan sóttkvíar. Á sama tímabili hafa fjórir greinst á landa­mærunum. Greindum smitum hefur farið fækkandi að undan­förnu sem kann að sögn Þórólfs að skýrast af þeim aðgerðum sem gripið var til nýverið og takmarkar komu fólks hingað frá mestu áhættu­svæðum.

„Ég held að við séum á nokkuð góðum stað,“ sagði Þórólfur almennt um faraldurinn. „Þetta gefur vonandi tilefni til að hægt verði að aflétta nokkuð hratt á næstu vikum innanlands.“ Áætlað að næsta reglugerð um takmarkanir taki gildi í næstu viku.

„Helsta áhyggju­efni núna, eða áskorunin öllu heldur, er sú mikla aukning á fjölda feðra­manna sem eru að koma til landsins og er meiri en spáð hefur verið,“ sagði Þórólfur. Skýringin á því felst helst í því að opnað var fyrir ferðalög fólks hingað til lands utan Schengen og miklum fjölda ferða­manna frá Banda­ríkjunum, sem framvísa vottorðum um bólu­setningu eða fyrri sýkingu. Síðustu viku hafa rúmlega 3.000 einstaklingar komið til landsins og tæplega helmingur sem kom fram­vísaði fyrr­greindum vottorðum.

Samkvæmt nýjustu farþega­spám er búist við enn meiri fjölgun á næstu vikum sem mun valda miklu álagi við greiningar á sýnum. Heildar­getan er í dag um 3-4.000 sýni á dag. „Þetta mun kalla á einhverja breytingu á landa­mærum sem mun vonandi ekki koma niður á öryggi við að halda veirunni frá landinu,“ sagði Þórólfur.

Hann segir ekki hægt að segja að hjarð­ónæmi hafi náðst þó að bólu­setningar gangi vel. Um 50 þúsund manns hér á landi eru nú full­bólusettir. Á meðan slíkt ónæmi er ekki til staðar geta enn komið upp stórir faraldrar. Til að hjarð­ónæmi sé náð er talað um að 60-70 prósent hóps, í þessu tilviki þjóðarinnar, þurfi að vera ónæmur.

„Þannig má í heildina segja að staðan og útlitið sé gott þessa stundina en við þurfum að gæta okkar að grunn­atriðum sóttvarna.“

Hann sagði fulla ástæðu til að vera bjartsýnn um fram­haldið út af bólu­setningum. Þær hafi gefist vel. „Ég hef fulla trú á að við getum horft björtum augum á fram­tíðina. Hvort að við getum farið á böll eða skemmt okkur ærlega eða á stórar hátíðir í sumar eða haust skal ég svo sem ekki segja en ég tel fulla ástæðu til að vera bjartsýnn á að við séum svona hægt og bítandi að sigla út úr þessu. En svo þurfum við líka að vera viðbúin því að eitthvað annað geti komið upp og þá þurfum við bara að bregðast við því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár