Brexit-áhrif að ganga til baka á hlutabréfamörkuðm

Eftir „sjokk“ áhrif vegna Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar hafa hluta­bréfa­mark­aðir að mestu jafnað sig. FJár­mála­fyr­ir­tæki í Bret­landi hafa þó ekki gert það ennþá, og ekki pundið heldur. Pólitísk óvissa um fram­haldið er enn við­var­andi.

Vísi­tölur helstu hluta­bréfa­mark­aða í heim­inum hafa að mestu leyti náð sömu stöðu og var á mörk­uðum, áður en „sjokk“ áhrifin af Brexit-kosn­ing­unum komu fram. FTSE vísi­talan hækk­aði um 2,21 pró­sent í dag, DAX vísi­talan þýska um 1,75 pró­sent, og Nasdaq vísi­talan í Banda­ríkj­unum hefur hækkað 1,94 pró­sent, sam­kvæmt fréttum Wall Street Journal.

Pundið kostar nú 167 krónur, en það kost­aði tæp­lega 180 krónur fyrir kosn­ing­arnar. Krónan hefur því styrkst umtals­vert gagn­vart pund­inu að und­an­förnu.

Pundið hefur styrkst lítið eitt gagn­vart Banda­ríkja­dal, en er ennþá mun veik­ara en það var, fyrir atkvæða­greiðsl­una. Sem kunn­ugt er fór hún þannig, að 52 pró­sent Breta kusu með því að Bretland yfir­gæfi Evr­ópu­sam­bandið en 48 pró­sent vildu að Bretland yrði ennþá hluti af því.

Þrátt fyrir að hluta­bréfa­vísi­tölur hafi jafnað sig, að með­al­tali, þá er mark­aðsvirði margra stórra fyr­ir­tækja í Bret­landi ennþá mun lægra en það var fyrir atkvæða­greiðsl­una. Sér­stak­lega á þetta við um banka og trygg­ing­ar­fé­lög.

Hart var deilt um nið­ur­stöð­una í Brexit-kosn­ing­unum á Evr­ópu­þing­inu í gær, og var Nigel Farage, for­ystu­maður UKIP, breska sjálf­stæð­is­flokks­ins, sak­aður um að beita lygum og blekk­ingum í aðdrag­anda kosn­ing­anna, og gekk einn svo langt að segja hann hafa borið fram „nas­ista­á­róður“.

Ekki liggur fyrir ennþá, hvert verður póli­tískt fram­hald máls­ins í Bret­landi, en David Cameron, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur þó til­kynnt um afsögn sína. Samkvæmt sátt­mála ESB hafa aðild­ar­þjóðir tvö ár til að yfir­gefa sam­bandið, eftir að hafa form­lega til­kynnt um að þau ætli að yfir­gefa sam­bandið. Ekkert liggur fyrir um það enn, hvernig staðið verður að útgöngu.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur sagt að engar óform­legar við­ræður muni eiga sér stað um nein mál, er varð­andi hugs­an­lega útgöngu, heldur ein­ungis ef það kemur form­lega frá breskum stjórn­völdum, að vilji sé til útgöngu.

Íslensk stjórn­völd eru að fylgst grannt með þróun mála, sam­kvæmt því sem Lilja Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, hefur sagt. Íslands á mik­illa hags­muna að gæta þegar kemur að við­skiptum við Bretland. Voru- og þjón­ustu­út­flutn­ingur nam 120 millj­örðum í fyrra til Bret­lands, og þá komu um 19 pró­sent erlendra ferða­manna til Íslands frá Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár