Landsbankinn og Íslandsbanki spá 75 punkta hækkun

Greiningar­deildir tveggja stærstu viðskipta­banka landsins búast báðar við mikilli vaxta­hækkun í næstu viku vegna mikillar verðbólgu, breyttra væntinga og viðspyrnu í efnahags­lífinu.

Hagfræði­deild Lands­bankans og Greining Íslands­banka spá því að stýri­vextir Seðla­bankans muni hækka um 0,75 prósentu­stig á miðvikudeginum í næstu viku. Þetta kemur fram í greiningum þeirra sem birtust núna í morgun.

Samkvæmt Íslands­banka munu þrír þættir vega þungt í næstu stýrivaxta­ákvörðun peninga­stefnu­nefndar Seðla­bankans: Versnandi verðbólgu­horfur, hækkun verðbólgu­væntinga og ágætar efnahags­horfur. Þó telur greiningar­deildin að nefndin muni væntanlega líka horfa til áhrifa á skuldsett heimili og viðkvæmar atvinnu­greinar.

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá telur Íslands­banki að stýri­vextir muni hækka allverulega á næstu misserum, en hann gerir ráðfyrir að þeir verði 3,25 prósent í lok ársins. Eftir tvö ár er svo búist við að vextirnir verði komnir upp í langtíma­jafnvægi í fjórum prósentum.

Í hagsjá Lands­bankans segir að kjölfesta verðbólgu­væntinga hafi veikst töluvert á síðustu mánuðum. Nú búast heimili við því að verð­bólgan eftir fimm ár verði 3,5 prósent, en fyrirtæki gera ráð að verð­bólgan verði fjögur prósent í árslok. Samkvæmt bankanum er sérstak­lega mikilvægt að halda verðbólgu­væntingum fyrir­tækja í skefjum, þar sem fyrir­tækin ákveða verð á allri vöru og þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár