Spá fjögurra prósenta stýrivöxtum eftir tvö ár

Í nýrri þjóð­hags­spá Íslands­banka er gert ráð fyrir að stýri­vextir verði 3,25 pró­sent á árinu. Í árs­byrjun 2024 verði vext­irnir svo komnir í fjögur pró­sent, sem bank­inn telur vera nálægt jafn­væg­is­gildi þeirra.

Íslandsbanki býst við að verðhækkanirnar á húsnæðismarkaðnum róist á árinu.
Íslands­banki býst við að verð­hækk­an­irnar á hús­næð­is­mark­aðnum róist á árinu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslands­banki telur að stýri­vextir verði hækk­aðir um 1,25 pró­sentu­stig á árinu, sam­hliða rúm­lega fjög­urra pró­senta hag­vexti. Einnig býst bank­inn við að hús­næð­is­verð tak­ist að róast með­fram vaxta­hækk­un­unum og auknu fram­boði íbúða. Þetta kemur fram í nýrri þjóð­hags­spá Íslands­banka, sem birt­ist á vef bank­ans í morgun.

Sterkt gengi, margir túristar og lítið atvinnuleysi

Þjóð­hags­spáin er nokkuð björt, en í henni er gert ráð fyrir að allt að 1,2 millj­ónir ferða­manna komi til lands­ins í ár og að gengið styrk­ist um átta til níu pró­sent yfir árið. Sömu­leiðis býst bank­inn við að atvinnu­leysi hjaðni og verði að með­al­tali 4,5 pró­sent á árinu.

Bankinn telur einnig að verð­bólgan, sem mælist nú um fimm pró­sent, verði komin niður í 3,2 pró­sent í lok þessa árs og rétt undir 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­mið­inu á næsta ári. Sú spá byggir á væntri geng­iss­styrk­ingu krón­unnar á árinu, auk vænt­inga um að kjara­samn­ingar ógni ekki verð­stöð­ug­leika, að fram­boðs­hnökrar sem hafa orðið erlendis hverfi á árinu og að íbúða­verð hækki mun minna en í fyrra.

Minni hækkun íbúðaverðs

For­sendan um minni verð­hækk­anir á íbúða­mark­aði byggja á vonum um að hús­næð­is­fram­boð taki við sér á árinu. Samkvæmt bank­anum rímar þær vonir við taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins frá sept­em­ber síð­ast­liðnum, en sam­kvæmt þeim var tölu­verð aukn­ing á íbúðum í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á fyrri bygg­ing­ar­stigum.

Íslands­banki nefnir einnig að Seðla­bank­inn hafi gripið til ýmissa aðgerða til að stemma stigu við hraða hækkun íbúða­verðs. „Þessar aðgerðir munu koma til með að hafa áhrif á íbúða­mark­að­inn í vax­andi mæli á kom­andi miss­erum,“ segir í spánni.

Ein þess­ara aðgerða var hækkun stýri­vaxta, en þeir fóru úr 0,75 pró­sentum í tvö pró­sent í fyrra. Íslands­banki gerir ráð fyrir að vext­irnir muni halda áfram að hækka jafn­hratt og enda í 3,25 pró­sentum í lok árs­ins. Samkvæmt bank­anum er lang­tíma­jafn­vægi stýri­vaxta þó nálægt fjórum pró­sentum, svo búist er við áfram­hald­andi vaxta­hækkun á næsta ári.

Síðasta ár umfram spár

Þrátt fyrir nýjar og óvæntar bylgjur af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var efna­hags­þró­unin á síð­asta ári mun betri en Íslands­banki gerði ráð fyrir í þjóð­hags­spánni sinni í jan­úar 2021. Þar bjóst bank­inn við að 9,4 pró­senta atvinnu­leysi að með­al­tali yfir árið og 3,2 pró­senta hag­vexti. Bankinn áætlar nú að atvinnu­leysið hafi ein­ungis verið 7,7 pró­sent að með­al­tali í fyrra en að hag­vöxt­ur­inn hafi alls náð 4,1 pró­senti.

Samkvæmt Íslands­banka hafa und­an­farnir árs­fjórð­ungar sýnt fram á þol hag­kerf­is­ins gagn­vart sveiflum og smitum í sótt­vörnum. Því myndi þrá­lát­ari far­aldur í versta lagi seinka þeim hag­vexti sem búist er við, en lík­lega ekki riðla honum að ráði til með­al­langs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár