Viðræðum Bandaríkjanna og Kanada lauk án niðurstöðu

Ekki tókst að ná samningi milli Banda­ríkjanna og Kanada.

Viðræðum um endur­bættan fríverslunar­samning Banda­ríkjanna og Kanada lauk í gær án niður­stöðu. Donald Trump Bandaríkja­forseti hafði áður lofað því að niðurstað kæmi í dag, en af því verður ekki.

Hinvegar lét Chrystia Freeland, utan­ríkis­ráðherra Kanada sem fer með alþjóða­samninga fyrir hönd landsins, hafa eftir sér eftir að viðræður voru sigldar í stran, að stutt væri í góða niður­stöðu allra þjóðanna sem ættu aðild honum. Var þar átt við Banda­ríkin, Kanada og Mexíkó. 

Viðskipta­samband Banda­ríkjanna og Kanada er djúpstætt og afar mikilvægt báðum ríkjum, eins og land­fræðileg lega gefur til kynna. Flutningar milli landanna eru stöðugir og eru mörg fyrirtæki háð því að viðskiptin gangi vel fyrir sig milli landanna.

Trump hefur sakað Kanada­menn um að hlunnfara Banda­ríkin og lét meðal annars hækka tolla á kanadísk fyrirtæki, einkum innflutning á áli og stáli.

Kanadísk stjórnvölda hafa talað fyrir því að viðskipta­samband landanna verði áfram sterkt, svo að byggja megi enn frekar ofan á samband ríkjanna.

Banda­ríkjaþing gefur stjórn­völdum þrjá mánuði til að fullvinna samninginn áður en hann verður samþykktur 1. desember. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár