Sögulegur fundur Kim Jong Un og Trump

Fundað er í Singapúr.

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kór­eu, hitt­ust í Singa­púr klukk­an rúm­lega eitt í nótt að ís­lensk­um tíma.

Þá hófst formlega fundalota þeirra og sendi­nefnda sem þeim fylgja, en Trump hefur sagt að markmiðið sé að semja um að Norður-Kórea hætti allri fram­leiðslu kjarnorku­vopna og hætti einnig tilrauna­eldflauga­skotum sínum.

Trump og Kim voru báðir léttir í bragði, þegar þeir tókust í hendur fyrir framan fjölmiðla­menn, og sagðist Trump vongóður um að þetta yrðu góðar viðræður. Kim sagði að það hefði þurft að yfirstíga margar hindranir til að þessi fundur gæti átt sér stað.

Þetta er í fyrsta skipti sem Bandaríkja­forseti á fundar með leiðtoga Norður-Kóreu. Trump sagði á Twitter síðu sinni, að hans helstu andstæðingar voru gríðar­lega á móti þessum fundi, en það væri ástæðu­laust. Þetta myndi leiða til góðs.

Í lok fundar þeirra var skjal undir­ritað, þar sem Norður-Kórea skuld­bindur sig til að taka þátt í afvopnun á Kóreu­skaga. Frekari viðræður munu þó eiga sér stað um það sem tekur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár