Vill ekki að Donald Trump ávarpi breska þingið

Forseti neðri deildar breska þingsins vill ekki bjóða Trump að ávarpa þingheim í heimsókn forsetans til Bretlands.

„Hvað þennan stað varðar, þá er ég einarð­lega þeirrar skoðunar að andstaða okkar gegn kynþátta­fordómum og kynja­misrétti og stuðningur okkar við jafnrétti frammi fyrir lögum og sjálf­stæðum dómstóli, sé þinginu mikilvægt umhugsunar­efni.“

Þetta sagði John Bercow, forseti neðri deildar breska þingsins, í dag, samkvæmt frásögn BBC, en hann setti sig upp á móti því að Donald J. Trump ávarpaði breska þingið í opinberri heimsókn sinni til Bretlands.

Fyrsti þjóðhöfðingjinn sem Trump fundaði með í Banda­ríkjunum var Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, en hún hefur sagt að Bretar vilji vinna náið með Banda­ríkjunum þegar kemur að viðskiptum og stefnu í alþjóða­stjórnmálum.

Óhætt er að segja málflutningur Trumps sé umdeildur víða um heim, og þá einkum og sér í lagi komu­bannið sem hann lagði á alla íbúa sjö ríkja þar sem múslimatrú er hjá meirihluta íbúa.

Í Bretlandi hefur Trump verið sérstak­lega umdeildur, og þá einnig hjá íhalds­mönnum. Skemmst er að minnast þess þegar Boris Johnsson, utan­ríkis­ráðherra Bretlands og áður borgar­stjóri í London, sagði að hann vildi ekki setja íbúa í London í þá hættu, að þurfa að rekast á Donald Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár