Orkuverð rýkur upp úr öllu valdi í Danmörku

Gas­reikn­ingur danskra heim­ila gæti fjór­fald­ast og raf­magns­reikn­ing­ur­inn tvö­fald­ast ef fram heldur sem horfir. Orku­kreppan í Evrópu bítur ríki ESB fast.

Það eru takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að draga úr notkun á rafmagni og gasi, segja hagfræðingar.
Það eru tak­mörk fyrir því hversu mikið er hægt að draga úr notkun á raf­magni og gasi, segja hag­fræð­ingar. Mynd: EPA

Gríð­ar­legar hækk­anir á orku­verði í Danmörku verða mörgum heim­ilum mjög þung byrði í vetur að mati hóps hag­fræð­inga sem dag­blaðið Politi­ken fékk til að rýna í ástandið. Þeir draga upp dökka mynd og segja að mögu­lega ráði ekki allir Danir við hækk­an­irnar. „Þetta getur sett fjár­mál margra Dana í upp­nám,“ segir Palle Sørensen, hag­fræð­ingur hjá grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Nykredit. „Jafnvel þótt fólk lækki í ofn­unum hjá sér og spari þannig raf­magn þá eru tak­mörk fyrir því hversu mikið Danir geti dregið úr orku­notk­un­inni. Því miður gæti nið­ur­staðan orðið sú að ein­hverjir þurfi að yfir­gefa heim­ili sín.“

Danska rík­is­sjón­varpið, DR, fjallar einnig um orku­málin og fengu hag­fræð­ing hjá Danske Bank til að reikna út hversu mik­illi verð­hækkun dönsk heim­ili gætu átt von á í vetur. Samkvæmt þeim útreikn­ingum gæti gas­reikn­ing­ur­inn orðið fjórum sinnum hærri fyrir með­al­fjöl­skyld­una í vetur en hann var í fyrra­vetur. Þetta gæti þýtt að margir þyrftu að ganga á sparnað sinn til að greiða hita­reikn­ing­inn, sagði hag­fræð­ing­ur­inn Louise Agger­strøm um útreikn­inga sína. Með­al­fjöl­skyldan gæti þurft að greiða um hálfri milljón íslenskra króna meira í kynd­ingu en í fyrra, miðað við að notk­unin sé sú sama og fyrir tveimur árum.

En það er ekki aðeins gas­reikn­ing­ur­inn sem mun hækka veru­lega. Sömu sögu er að segja um raf­magnið. Nykredit spáir því að raf­magn verði tvisvar sinnum dýr­ara fyrir Dani á næsta ári en það var í fyrra.

Fyr­ir­tækið hefur reiknað út að fjög­urra manna fjöl­skylda noti um 4.000 kWst af raf­magni á ári. Í fyrra kost­aði sú notkun 10 þús­und danskar krónur, um 190 þús­und íslenskar. Á næsta ári mun reikn­ing­ur­inn, sam­kvæmt spánni, verða um 420 þús­und íslenskar krónur.

Danir eru líkt og flestar Evr­ópu­þjóðir í miklum vanda vegna hækk­andi orku­verðs sem rekja má fyrst og fremst til inn­rásar Rússa í Úkraínu. Vest­ur­veldin hafa sett marg­vís­legar við­skipta­þving­anir á rík­is­stjórn Pútíns sem aftur hafa nýtt sér það hversu háð Evr­ópu­ríki eru gasi frá þeim. Um 40 pró­sent af öllu gasi sem notað er í Evrópu kemur frá Rúss­landi. Og þess vegna er gasið beitt vopn, verðið á því er hækkað og fram­boð þess skert, sem aftur bitnar á hag almennra borg­ara allrar álf­unnar.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vill bregð­ast við verð­hækk­un­unum, líkt og leið­togar margra ríkja innan sam­bands­ins hafa kraf­ist.

Á morgun, föstu­dag, munu orku­mála­ráð­herrar aðild­ar­ríkj­anna eiga fund í Brussel um til hvaða ráða sé hægt að grípa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár