Ástandið í Venesúela býr til fylkingar í alþjóðasamfélaginu

Íslensk stjórn­völd eru í hópi með fjölmörgum ríkjum, sem hafa að undan­förnu lýst yfir stuðningi við Juan Guadió sem forseta Venesúela til bráða­birgða.

Íslensk stjórn­völd hafa lýst yfir stuðningi við Juan Guadió, andstæðing Maduro forseta í Venesúela, og hvatt til þess að kosningar fari fram hið fyrsta. Guðlaugur Þór Þórðarson, utan­ríkis­ráðherra, lýsti því yfir stuðningi við Guadió á Twitter í gær.

Kunnuglegar fylkingar eru að teiknast upp í alþjóða­samfélaginu.

Ástandið í Venesúela er skelfilegt og til marks um það spáir Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn, að lands­framleiðsla muni halda áfram að dragast hratt saman í ár en samdrátturinn er um 50 prósent frá árinu 2013. Hinn 5. mars það ár lést Hugo Chavez og tók Maduro, náinn banda­maður hans og utan­ríkis­ráðherra frá árinu 2006, við stjórnar­taumunum.

Upplausn

Efnahagur landsins er í rúst um þessar mundir. Óðaverðbólga, fjölda­gjaldþrota lítilla fyrir­tækja, heilbrigðis­kerfi óskilvirkt og skóla­starf víða í molum. Upplausn er kannski það orð sem lýsir ástandinu best.

Það á ekki síst við hið pólitíska svið, þar sem Mudor og Juan Guadió, helsti andstæðingur hans, takast á um völdin, og óhætt er að segja að alþjóða­samfélagið sé farið að blanda sér með beinum hætti í stöðu mála.

Reuters greindi frá því seinni partinn í dag, að portúgalski bankinn Novo Banco hefði komið í veg fyrir að 1,2 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 150 milljarðar króna, hefðu verið færðir frá bankanum inn á reikninga í Úrugvæ, að skipan Maduro og stjórnar hans.

Guadió hefur fengið vaxandi stuðning til að verða leiðtogi landsins sem forseti frá Evrópu­ríkjum að undan­förnu. Íslensk stjórn­völd bættust í hóp margra ríkja í gær, með yfir­lýsingu. „Íslensk stjórn­völd lýsa áhyggjum af stöðu þings­ins í Venes­ú­ela og stöðu mann­rétt­inda. Með yfir­lýs­ing­unni er verið að ítreka mik­il­vægi þess að lýð­ræð­is­legar kosn­ingar fari fram sem fyrst og lýsa yfir stuðn­ingi við að for­seti rétt­kjör­ins þjóð­þings verði for­seti lands­ins til bráða­birgða. Ísland gengur með þessu skemur en mörg ríki sem form­lega við­ur­kenna Juan Guaidó sem for­seta, eins og til dæmis Dan­mörk. Í yfir­lýs­ing­unni felst eng­inn stuðn­ingur við hót­anir ann­arra ríkja um hern­að­ar­í­hlutun í Venes­ú­ela eða önnur slík inn­grip,“ ­sagði Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, í viðtali við Kjarnann í dag.

Bandaríkin beita þrýstingi

Banda­ríkin hafa beitt sér verulega í málefnum Venesúela, meðal annars með efnahags­þvingunum. Ein verð­mætasta eign Venesúela utan landsins er fyrir­tækið Citgo, sem er dóttur­fyrirtæki ríkis­olíu­félagsins PDVSA.

Citgo einblínir á olíu­flutninga, olíu­hreinsun og aðrar stoð­þjónustu við olíuiðnað og er með höfuð­stöðvar í Texas. Bandarísk stjórn­völd hafa hótað því að gera eignir félagsins upptækar og hefta færslur á fjármagni frá félaginu til Venesúela ef Maduro fer ekki frá sem forseti, og Guadió tekur við völdum.

Maduro hefur brugðist æfur við afskiptum Banda­ríkjanna og segir þau vera að ræna almenning í Venesúela og reyna að komast yfir olíu­lindir landsins, sem eru þær mestu í heiminum, sem hafa verið stað­festar með rann­sóknum.

Hann kallaði eftir því í dag, að ef Banda­ríkin vildu hjálpa til við að leysa úr efnahags­vanda Venesúela, þá ættu þau að aflétta viðskipta­þvingunum áður en lengra yrði haldið, af því er fram kom í umfjöllun Bloomberg.

Kína, Rússland og Norður-Kórea í stuðningsliðinu

Maduro hefur opinberar stuðning nokkurra ríkja í heiminum. Þar á meðal eru Kína, Rússland, Tyrkland, Sýrland, Norður-Kórea og nágranna­ríkið Bólivía, svo dæmi séu nefnd. Segja má að þarna sé að teiknast upp kunnuglegar línur í alþjóð­stjórn­málunum.

Mörg ríki hafa bæst í hóp þeirra sem styðja það að Guadió verði forseti landsins til bráða­birgða, og að kosningar fari fram hið fyrsta, samkvæmt umfjöllun NPR. Þar á meðal eru Spánn, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Lettland, Litháen, Tékkland, Holland, Portúgal, Svíþjóð og Finnland, svo nefnd séu nokkur dæmi. Flest nágranna­ríki Venesúela styðja ekki Maduro, og eru þar stærstu ríki Suður-Ameríku, Brasilía og Argentína, bæði á sama báti.

Utan­ríkis­ráðherra Bretlands, Jeremy Hunt, sagði í færstu á Twitter að Maduro hefði ekki boðað til kosninga innan þess átta daga frests sem gefinn var, og því sé ekki lengu hægt að líta á hann sem leiðtoga Venesúela.

Í Venesúela búa tæplega 32 milljónir manna, en talið er að yfir 2,5 milljónir manna hafi flúið heimili sín á undan­förnum árum, og hefur flótti frá landinu aukist jafnt og þétt undan­farin misseri. Sérstak­lega er staðan alvarleg í úthverfum höfuð­borgarinnar Caracas, sem er með tvær milljónir íbúa, en séu nágranna­byggðir teknar með í reikninginn, eru íbúar yfir 6 milljónir. Á þessu svæði er upplausnar­ástand víða, vöru­skortur og innviðir að grotna niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár