Fórnarlömbum hryðjuverka fækkar um fjórðung milli ára

Dauðsföll vegna hryðjuverka­árása hefur farið fækkandi um allan heiminn. Mest fækkar þeim í Mið-Austur­löndum og í Evrópu, en þeim fjölgaði lítillega í Suðaustur-Asíu og Norður Ameríku.

Frá hryðjuverkaárásinni í Stokkhólmi í fyrra.
Frá hryðju­verka­árásinni í Stokk­hólmi í fyrra. Mynd: EPA

Alls létust rúmlega 26 þúsund manns vegna hryðju­verka árið 2017, sem er 24 prósenta fækkun frá því á árinu á undan. Fjöldi fórnar­lamba hefur fækkað töluvert á Mið-Austur­löndum og í Evrópu, en þeim fór nokkuð fjölgandi í Suð-Austur Asíu og Norður-Ameríku í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum gögnum Global Terrorism Database.

Gögnin eru gefin út af Lands­samtökum Banda­ríkjanna í átaka­fræðum við háskólann í Maryland, en þau hafa greint frá hverri einustu skilgreindu hryðjuverka­árás í heiminum frá árinu 1970. Enn fremur fylgir stutt lýsing á hverri árás sem átt hefur sér stað frá árinu 1997.

Samkvæmt gögnunum voru alls 10.900 hryðjuverka­árásir framkvæmdar í heiminum í fyrra. Meirihluti þeirra sér stað í fjórum löndum: Írak (23%), Afghanistan (13%), Indland (9%) og Pakistan (7%). Alls létust 26.400 manns vegna þeirra, en það er lækkun um 24% miðað við í fyrra. Meira en helmingur mann­tjónsins var þremur löndum: Írak (24%), Afghanistan (23%) og Sýrlandi (8%).

Minna í Mið-Austurlöndum, meira í Norður-Ameríku

Þrátt fyrir að stór hluti hryðjuverka­árása og manntjóns vegna þeirra hafi átt sér stað í Mið-Austur­löndum fór þeim þó fækkandi milli 2016 og 2017, en þau lækkuðu um meira en helming í Tyrklandi, Yemen, Sádí-Arabíu og Líbíu. Sömuleiðis fækkaði dauðsföllum í Evrópu um tæpan helming milli ára, mest í Vestur-Evrópu. Á hinn bóginn fjölgaði hryðjuverka­árásum í Nepal, Kamerún, Myanmar og Keníu um meira en helming. Í Banda­ríkjunum stórjókst einnig manntjón vegna hryðju­verka milli ára, einkum vegna árásarinnar í Las Vegas í október.

Mann­skæðustu hryðjuverka­samtökin voru þau sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIL), en manntjón vegna þeirra nam rúmum sjö þúsundum. Hins vegar hefur dauðsföllum vegna árása samtak­anna lækkað ört milli ára, eða um 40 prósent frá árinu 2016. Önnur skæð samtök eru Talíbanar með tæp fimm þúsund fórnar­lömb og Al-Shabaab með tæp tvö þúsund fórnar­lömb.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár