114 með COVID-19 – 962 í sóttkví

Þrjú ný innan­landssmit af kórónu­veirunni greindust hér á landi í gær. Ekkert virkt smit greindist við landa­mærin.114 manns eru nú með COVID-19 og í einangrun.

Einn sjúklingur með COVID-19 liggur á gjörgæsludeild Landspítalans.
Einn sjúk­lingur með COVID-19 liggur á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kórónu­veirunni hér á landi síðustu daga og er í einagrun er nú orðinn 114 samkvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is.

Þrjú ný tilfelli greindust innanlands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræðideild Land­spítalans. Ekkert virkt smit greindist við landa­mærin. Í gær voru 946 manns í sóttkví en í dag er fjöldinn kominn í 962. Einn er í öndunarvél á gjörgæslu­deild Land­spítalans vegna sjúk­dómsins.

397 sýni voru tekin og greind hjá Land­spítalanum í gær. Engar upplýsingar eru birtar á Covid.is í dag um fjölda sýna hjá Íslenskri erfða­greiningu sem hóf m.a. skimun í Vestmanna­eyjum í gær. Hins vegar má sjá að þrír sjúklingar hafa bæst við á Suður­landi frá því í gær og að 100 manns eru þar í sóttkví.

Af þeim sem eru með virkt smit eru flestir í aldurs­hópnum 18-29 ára eða 44. Níu á aldrinum 13-17 ára eru með COVID-19 og eitt barn yngra en tólf ára.

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febrúar hafa 1958 manns greinst með COVID-19. Tíu hafa látist vegna sjúk­dómsins.

„Næstu dagar munu skera úr um hvort hægt verði að fullyrða hvort að við höfum náð böndum á þessum faraldri,“ sagði Alma Möller land­læknir á upplýsinga­fundi almanna­varna í gær.

„Það er ekki að ástæðu­lausu sem við erum í þessum aðgerðum,“ sagði land­læknir ennfremur. „Þessi veira er skæð og getur valdið veikindum hjá mjög mörgum ef ekkert er að gert. Það er umtalsverður hluti þeirra sem fær hana í sig sem veikist alvarlega.“

Benti Alma í því samhengi á að af þeim sem greindust í vetur hafi um 7 prósent á sjúkrahús­innlögn að halda og 1,5 prósent á gjörgæslu­innlögn að halda. „Vissulega er áhættan mest fyrir þá eldri að veikjast alvarlega en það er samt þannig að fólk á öllum aldri getur orðið alvarlega veikt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár