Alma: Ungt og hraust fólk getur orðið alvarlega veikt

„Það er ekki að ástæðu­lausu sem við erum í þessum aðgerðum,“ segir Alma D. Möller land­læknir. „Þessi veira er skæð og getur valdið veik­indum hjá mjög mörgum ef ekk­ert er að gert.“ Maður á fer­tugs­aldri liggur á gjör­gæslu með COVID-19.

Alma Möller, landlæknir á upplýsingafundi dagsins.
Alma Möller, land­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Lögreglan

Einn sjúk­lingur með COVID-19 liggur enn á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í önd­un­ar­vél. Hann er á fer­tugs­aldri. Af þeim þremur sem greindir voru með COVID-19 í gær voru tveir þegar í sótt­kví. Þá tengd­ust tveir þess­ara ein­stak­linga hóp­sýk­ing­unni í Vest­manna­eyjum.

Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag að rað­grein­ingar Íslenskrar erfða­grein­ingar sem þegar lægju fyrir sýndu að þær sýk­ingar sem hefðu greinst að und­an­förnu væru af völdum sama afbrigðis veirunnar. Þetta afbrigði hefur stungið sér niður í öllum lands­hlutum. Nú eru 112 virk smit í land­inu. „Nokkurn fjölda þess­ara ein­stak­linga hefur ekki tek­ist að rekja saman og það er okkar aðal áhyggju­efni,“ sagði Alma.

Íslensk erfða­grein­ing hefur ski­mað að und­an­förnu en nú hefur sú breyt­ing orðið á þeirri fram­kvæmd að ski­mað er út frá til­fellum sem upp koma og sam­kvæmt mati smitrakn­ing­arteymis. Í dag er t.d. í gangi skimun í Vest­manna­eyjum.

„Næstu dagar munu skera úr um hvort hægt verði að full­yrða hvort að við höfum náð böndum á þessum far­aldri,“ sagði Alma. Ánægju­legt væri að aðeins þrír hefðu greinst í gær en af því væri vissu­lega ekki enn hægt að draga neinar álykt­anir enda sveiflur milli daga.

[adspot]

„Við viljum áfram hvetja alla sem eru með ein­kenni sem gætu bent til COVID að halda sig heima og hafa sam­band við sína heilsu­gæslu.“ Þau ein­kenni sem mest hefði borið á upp á síðkastið væru háls­sær­indi, vöðva- og bein­verkir, slapp­leiki, hiti og höf­uð­verkur. Þá væru einnig til staðar sjald­gæfari ein­kenni á borð við skyndi­legt tap á bragð- og lykt­ar­skyni, ógleði, upp­köst og nið­ur­gang.

[links]„Það er ekki að ástæðu­lausu sem við erum í þessum aðgerðum. Þessi veira er skæð og getur valdið veik­indum hjá mjög mörgum ef ekk­ert er að gert. Það er umtals­verður hluti þeirra sem fær hana í sig sem veik­ist alvar­lega.“ Benti Alma því sam­hengi á að af þeim sem greindust í vetur hafi um 7 pró­sent á sjúkra­húsinn­lögn að halda og 1,5 pró­sent á gjör­gæslu­inn­lögn að halda. „Vissu­lega er áhættan mest fyrir þá eldri að veikj­ast alvar­lega en það er samt þannig að fólk á öllum aldri getur orðið alvar­lega veikt.“

Þá sagði hún að umtals­verður hluti þeirra sem veikt­ist lít­il­lega í vetur væri enn að glíma við langvar­andi og fjöl­breytt ein­kenni, meðal ann­ars mikið úthalds­leysi. „Þetta er auð­vitað ástæðan fyrir því að við viljum halda veirunni niðri.“

Alma sagði að sjúk­ling­unum væri sinnt af Covid-göngu­deild­inni og að í hópi þeirra væru fólk sem væri veikt, þó það þyrfti ekki á inn­lögn að halda. Spurð hvort að sjúk­ling­ur­inn sem nú lægi á gjör­gæslu, sem væri rétt rúm­lega þrí­tugur, hefði und­ir­liggj­andi sjúk­dóma svar­aði Alma að engar upp­lýs­ingar væru veittar um ein­staka sjúk­linga. „En ég legg áherslu á að ungt og áður hraust fólk getur orðið alvar­lega veikt.“

Á fund­inum var hún spurð út í þá gagn­rýni Gylfa Zoega hag­fræði­pró­fess­ors um að stjórn­völd hafi gert mis­tök með því að opna landa­mærin með skimunum um miðjan júní. Gylfi setti þessa gagn­rýni sína fram í grein sem birt er í Vís­bend­ingu. „Ég er nátt­úr­lega ekki hag­fræð­ingur,“ byrj­aði Alma á að svara. „Það var auð­vitað rík­is­stjórnin sem ákvað að það væri mik­il­vægt fyrir efna­hag lands­ins að hingað kæmu ferða­menn. Og það var farin sú leið að skima, sem mér fannst vera rétt leið, að gæta eins mik­illar var­kárni og hægt væri. Auðvitað vissum við að skimunin væri ekki full­komin en við vissum að hún myndi minnka líkur á því að hingað bær­ust smit.“

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn vildi svo hnykkja á því að landa­mærin hafi aldrei verið alveg lokuð. „Það hefur alltaf verið umræða um að 15. júní hafi landa­mærin opnað en þá voru settar miklu strang­ari og stíf­ari reglur um landa­mærin. Fram að þeim tíma gátu allir innan Schengen-svæð­is­ins komið hér og valið að vera hér í sótt­kví í fjórtán daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár