Kannski ætti ég að selja?

Prófessor í hagfræði við Yale háskóla segir í viðtali við New York Times að það mikla verðhrun sem hefur verið á hluta­bréfum í Banda­ríkjunum að undan­förnu sé farið að hafa áhrif á sálarlíf margra fjárfesta.

Robert Shiller, prófessor í hagfræði við Yale háskóla, segir í viðtali við New York Times í dag, að miklar lækkanir á hlutabréfa­markaði að undan­förnu, séu farnar að hafa áhrif á hugsunar­hátt margra fjárfesta. Þeir hugsi nú: kannski ætti ég að selja?

Verð­hrunið hefur verið það mesta síðan fyrir áratug, þegar alþjóða­markaðir gengu í gegnum fjármála­kreppu og erfið­leika.

S&P 500 vísitalan hefur lækkað um 22 prósent frá því í ágúst. Margir búast við því, að hlutabréfa­markaðir muni renna inn í óvissu­tímabil á nýju ári, þar sem vextir hafa farið hækkandi og umfangs­miklar fjár­innspýtingar­aðgerðir seðla­banka, bæði í Banda­ríkjunum og Evrópu, eru nú að hætta. Seðla­banki Evrópu hættir formlega með kaup­áætlun sína á skulda­bréfum í janúar, en frá því árið 2012 hefur hann keypt skulda­bréf þjóðríkja og fyrir­tækja fyrir 60 milljarða evra í mánuði, til að styðja við hagvöxt. Áætlunin þykir hafa heppnast vel, en enginn veit hvað mun gerast þegar hún stöðvast.

Vísitölur flestra geira á hlutabréfa­markaði hafa lækkað mikið, og má nefna að tækni­risarnir hafa hrapað í markaðs­virði eftir að hafa náð hámarki um mitt ár. Fjórðungur markaðsvirðist margra stærstu tækni­fyrirtækja heimsins, eins og Amazon, Facebook og Apple, hefur þurrkast út á átta vikum.

Seðla­banki Banda­ríkjanna hefur hækkað stýri­vexti fjórum sinnum á þessu ári, og eru þeir nú 2,5 prósent. Bandaríkja­forseti, Donald Trump, hefur tekið þessu illa, og gagnrýnt bankann harðlega fyrir að hækka vextina.

Greint var frá því fjöl­miðlum í Banda­ríkjunum í morgun, meðal annars í Washington Post, að Trump hefði rætt það við samstarfs­fólk sitt, hvort réttast væri að reka Jerome Powell, seðla­bankastjóra, vegna vaxta­hækkana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár