Siluðust áfram í óveðrinu þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn jólin

Ómar Ellertsson lýsir eftir­minnilegustu jólunum.

Ég myndi segja að ég sé mikið jólabarn, enda eigum við bræður báðir afmæli í desember. Ég skreyti ekki mikið því heimilið mitt er þar sem ferða­taskan er, en ég á lítið jólatré úr Ilvu sem ég set upp og er þar með búinn að skreyta. 

Jól æsku minnar voru alltaf eftir­minnileg, en fyrstu jólin með manninum mínum eru sennilega þau eftir­minnilegustu. Þetta var árið 2004 og ég var að vinna í Blómavali í Sigtúni á aðfangadag. Rétt fyrir lokun fór ég að tala við kollega minn sem seldi jólatré og spurði hvort hann ætti eftir einhverja furu. Hann sýndi mér þau tvö tré sem voru óseld, því þau voru þannig í útliti að það vildi enginn kaupa þau. Ég tók annað og tróð í bílinn minn, Fiat Multipla. 

Ég og maðurinn minn keyrðum svo í Úthlíð, þar sem hann hafði aðgang að bústað í gegnum vinnuna. Á leiðinni lentum við í alveg band­brjáluðu veðri. Við hlustuðum á kirkju­klukkurnar hringja inn jólin á RÚV einhvers staðar við Laugar­vatn, en frá Apavatni vorum við heila tvo tíma að keyra að Úthlíð. 

Þegar við komumst loks í sumar­bústaða­byggðina festumst við í brekku. Í einum öðrum bústað var fólk og fyrir algjöra tilviljun gat það séð okkur. Maður kom út til að hjálpa okkur að losa bílinn og ýta. Án hans hjálpar hefðum við varið jólunum í bílnum.

Þegar við vorum komnir inn var þetta allt mjög rólegt og hógvært hjá okkur. Við skreyttum tréð sem enginn vildi, borðuðum osta og eitthvert smá kjöt en ekkert heitt og enduðum ævintýrið í heitum potti.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég ogmaðurinn minn!egogkonanmín!það var aldrei aðegfekkaðkennaaþviaðveralesbíaherá árumáður þaðvar svoleiðisfyrirlitningin íminngarðvegnaþesssemlakaffólkinuþegarminstvarámigaðþaðvaralveg yfirgengilegtogþað ánsannanavarðandiþaðsvovaregkilluðniðursetuklepparakellingin oglessan í hvammiauk fleirrimiðurfallegra uppnefna svo sagði fólk að ég svífi meðhiminskaautumí vitleysunni en bíðum við!hver á svo hvamsvíkina í dag? Er þaðekkifyrrverandi gjaldþrota forstjóriflugfelagsinswow semereigandinn idag wow momhaaa?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár