Friðsömum mótmælendum vísað af þingpöllum

Héldu á borða þar sem þing­heimur var hvattur til að virða barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Mótmælendur sem hvöttu þingheim til að virða barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna voru beðnir um að yfirgefa þingpalla meðan Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hélt stefnu­ræðu sína á Alþingi í kvöld. „Borðinn var hirtur, við vorum rekin út og nöfnin okkar skráð niður,“ segir einn þeirra sem stóðu að mótmælunum í samtali við Stundina.

Aðgerðin var skipulögð af Ungum jafnaðar­mönnum, ungliða­hreyfingu Samfylkingarinnar og sneri að málum sem verið hafa í umræðunni undan­farna daga, brott­vísun hælis­leitendanna Hanyie og Mary og fjöl­skyldna þeirra. Þing­flokkur Samfylkingarinnar ætlar leggja fram frumvarp á morgun þess efnis að stúlkurnar og fjöl­skyldur þeirra fái ríkis­borgararétt.

Í tilkynningu Ungra jafnaðar­manna sem send var fjöl­miðlum í kvöld er bent á að aldrei í sögu mannkyns hafi fleiri börn verið á flótta en nú. „Það er með öllu óásættanlegt að íslensk stjórn­völd beri fyrir sig valkvæða heimild í Dyflinnar­reglu­gerðinni og vísi börnum, sem hingað leita skjóls og verndar, aftur út í óvissu og öryggis­leysi. Það er siðferðisleg skylda okkar að taka utan um börn á flótta og veita þeim skjól,“ segir þar. Er þess krafist að stjórn­völd stöðvi þegar í stað brott­vísanir á börnum sem koma frá átaka­svæðum og sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Þá er kallað eftir því að útlendingalög og framkvæmd þeirra verði tekin til heild­stæðrar endur­skoðunar og fólki verði auðveldað að setjast hér að, hvort sem um ræðir veitingu atvinnu­leyfa, alþjóðlegrar verndar eða ríkis­borgara­réttar.

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, birtir stöðu­uppfærslu á Facebook um mótmælin. „Lögreglan var rétt í þessu að vísa friðsælum og þöglum mótmælendum á brott af áhorfenda­palli þingsins fyrir að halda á lofti skila­boðum um sð virða barna­sáttmálann,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár