Segir fáránleika kröfu Guðmundar um afsögn varaformanns Eflingar „óbærilega“ ógeðslegan

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir vara­formann Eflingar vera fyrsta raun­verulega fulltrúa aðflutts verka­fólks í verkalýðs­baráttunni, en um helmingur félags­fólk í Eflingu er aðflutt fólk.

Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska
Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska Mynd: Samsett

Guðmundur Baldursson, stjórnar­maður í Eflingu, sagði í Kastljósi í gær að hann teldi að Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­formaður Eflingar, ætti að segja af sér líkt og Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður félagsins, og Viðar Þorsteinsson, framkvæmda­stjóri þess, hafa valið að gera.

Sólveig Anna bregst við þessari kröfu í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag og segir að þótt henni hafi ekki verið hlátur í huga yfir viðtalinu við Guðmund þá hafi hún ekki getað annað en hlegið „agnars­máum“ hlátri þegar þessi orð féllu. „Ég hugsaði um „afreka­lista" hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem tilheyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þessvegna hló ég í örskamma stund. Fárán­leiki þess að þessi maður væri að krefjast þess að hún léti sig hverfa var svo yfir­gengilegur. En auðvitað fyrst og síðast svo óbærilega ógeðs­legur.“

Hún segir að Agnieszka sé fyrsti raun­verulegi fulltrúi aðflutts verka­fólks í verkalýðs­baráttunni, en um helmingur félags­fólk Eflingar er aðflutt fólk. Með kjöri hennar hafi í fyrsta skipti verið sett manneskja í ábyrgðar­hlutverk sem tilheyrir þeim hópi. „Hún þekkir allt það svívirðilega rugl sem viðgengst gagnvart aðfluttu verka­fólki á eigin skinni. Allt. Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raun­verulega hafa viljað bæta hag alls vinnu­aflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stórkost­lega umbóta vinnu innan félagsins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæmlega sömu þjónustu og þau okkar sem fædd eru hér. [...] Og svo dirfist einhver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín en ég veit af mikilli reynslu að það kann [hann] ekki.“

Logar allt í illdeilum

Sólveig Anna sagði af sér á sunnudag og Viðar fylgdi eftir með uppsögn í gær. Forsagan af þeim deilum sem urðu til þess er að í júní sam­­­þykktu starfs­­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­­lega. Í henni voru stjórn­­­endur stétt­­­ar­­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­­fólki. Trún­­­að­­­ar­­­menn starfs­­­manna und­ir­­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­­manna.

Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­­tal við Guð­­­mund Bald­­­ur­s­­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­ars um að starfs­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­ar­­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­­veig Anna starfs­­­menn á föst­u­­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­­gjarnt að stjórn­­­endur veltu ábyrgð á inn­­­an­hús­­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­­veig Anna af sér og sagði starfs­menn Efl­ingar hafa hrakið sig úr starfi.

Guð­mundur sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann sagði að Sól­­veig Anna hafi „haldið lyk­il­­upp­­lýs­ingum leyndum frá stjórn­­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­­fólks á skrif­­stofu Efl­ing­­ar“ með því að neita að kynna fyrir stjórn­­inni starfs­loka­­samn­ing við fyrr­ver­andi skrif­­stofu­­stjóra Efl­ingar í upp­­hafi þessa árs.

Allir eft­ir­stand­andi með­limir stjórnar Efl­ingar nema þrír, alls ell­efu manns, sendu í kjölfarið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau hvöttu Guð­mund til að segja af sér stjórn­ar­mennsku. Þau hvöttu hann auk þess til að „láta verða af hug­myndum sínum um stofnun nýs klofn­ings­-­stétt­ar­fé­lags.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár