Sólveig Anna segist hafa orðið fyrir ofbeldishótunum frá starfsmanni Eflingar

Formaður Eflingar segist hafa tekið sína ákvörðun. Hún sé að viðurkenna fyrir sér sjálfri hverjar takmarkanir sínar sem manneskju eru þegar fólk sé reiðubúið að svipta hana ærunni opinber­lega en „stendur þögult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi“.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í gær, segir að einn af karlkyns starfs­mönnum skrif­stofu Eflingar hafi „lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru augljós­lega einhvers konar ofbeldi.“

Hún segir í stöðu­uppfærslu á Facebook að umræddur starfs­maður Eflingar hafi látið „fylgja sögunni, þegar hann lýsti ofbeldis­hótunum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sannaði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fangelsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafnvel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint saka­vottorð.“

Tilefni stöðu­uppfærslunnar er frétt á Vísi í dag þar sem sagt er frá því að yfir­lýsing Sólveigar Önnu um ástæður afsagnar hennar úr stöðu formanns Eflingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfs­menn stéttar­félagsins“. Þar var haft eftir heimildum að starfs­fólk Eflingar hefði fundist Sólveig Anna hafa gefið „opið skotleyfi“ með því að hafa greint frá því að hún teldi starfs­menn hafa hrakið sig úr starfi.

Segir manninn óánægðan með að hafa ekki fengið stöðuhækkun

Sólveig Anna segir að sér sé ekki kunnugt um að hún hafi gert nokkuð á hlut þess manns sem hún segir hafa hótað sér ofbeldi, og er ekki nafn­greindur í stöðu­uppfærslunni, en að henni skiljist að hann sé óánægður með að annar starfs­maður fékk stöðu­hækkun sem hann taldi sig eiga rétt á. „Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórn­endum á skrif­stofu Eflingar, þeim sömu sem hafa á síðastliðnum árum farið fram með enda­lausar lygar, hótanir um dómsmál og óhróður gegn mér, í fjöl­miðlum og víðar.

Þetta dæmi, sem er staðfest með skrif­legum vitnis­burði sem liggur inni hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Eflingar, er aðeins eitt af mörgum um það ofstæki og þá heift sem þótt hefur eðlilegt að ég sitji undir af hálfu starfs­fólks Eflingar frá þeim degi sem ég var kosin sem formaður Eflingar.“

Hún telji blasa við að nú verði hún sökuð um lygar, og beðin um sönnunar­gögn sem aldrei verða nógu marktæk. „Ég verð sjálf sögð vera vandmálið. Ég stundi ógnar­stjórn og gangi um með aftöku­lista. Skelli jafnvel hurðum, svo fast að starfs­fólk Eflingar óttist mig og þurfi sérstaka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi tilkynnt um málið til lögreglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfs­menn á vinnu­staðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa uppákomu. Þeir munu eflaust ekki kannast lengur við neitt.“

Dramatík á síðustu dögum

For­­saga máls­ins er sú að í júní sam­­þykktu starfs­­menn Efl­ingar ályktun sem hefur ekki verið birt opin­ber­­lega. Í henni voru stjórn­­endur stétt­­ar­­fé­lags­ins gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína gagn­vart starfs­­fólki. Trún­­að­­ar­­menn starfs­­manna und­ir­­rit­uðu álykt­un­ina og hún var sett fram fyrir hönd starfs­­manna.

Á fimmt­u­dag birti RÚV svo við­­tal við Guð­­mund Bald­­ur­s­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­ars um að starfs­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­ar­­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­­veig Anna starfs­­menn á föst­u­­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.

Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósann­­gjarnt að stjórn­­endur veltu ábyrgð á inn­­an­hús­­málum yfir á sig.

Í kjöl­farið sagði Sól­veig Anna af sér og sagði starfs­menn Eflingar hafa hrakið sig úr starfi.

Fleiri með vitneskju um hótunina

Í stöðu­uppfærslunni í kvöld segir hún að starfs­fólk Eflingar hafi talið mjög brýnt og nauðsynlegt að hún sitji áfram undir óleið­réttum ásökunum. „Í salnum sat starfs­maðurinn, sem sjálfur varð vitni að ofbeldis­hótunum í minn garð frá þessum samstarfs­manni okkar, og sem hefur sagt frá uppákomunni við nokkra aðra starfs­menn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vitneskju um hótunina, til dæmis trúnaðar­maður vinnu­staðarins, sá sami og gengið hefur harðast fram í glóru­lausum ásökunum gegn mér og kröfum um að vinnustaða­fundum verði snúið upp í réttarhöld yfir glæpum mínum.

Ég var ekki á fundinum. Ég veit því ekki hvort einhver fundar­manna sem hafði vitneskju um rétt svo tveggja vikna gamlar ofbeldis­hótanirnar gegn mér hafi rétt upp hönd, spurt ef til vill spurninga, velt því ef til vill upp hvort komið væri gott af „opnu skotleyfi“ á mig? Það veit ég ekki, en ég veit hver niður­staðan var af fundinum.“

Stendur við ákvörðun sína

Sólveig Anna segist hafa tekið sína ákvörðun og ætla að standa við hana. Hún sé ekki að hlaupast undan merkjum. „Ég er einungis að viðurkenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar takmarkanir mínar sem manneskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðubúið að svipta mig ærunni opinber­lega en stendur þögult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.

Ég legg til að við, undirokað fólk af stétt verka- og láglaunafólks, stöndum saman. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heimurinn sem við lifum í er skakkur, viðsnúinn, bjagaður. Í þessari skekkju hallar alltaf á okkur. Að átta sig á því er fyrsta skrefið. Svo fikrum við okkur áfram saman, eitt skref í einu, stöppum stálinu hvert í annað, vinnum fyrst lítinn sigur, svo annan lítinn og svo stóran. Óhjá­kvæmilega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim réttan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár