IKEA segir framboðstruflanir geta varað fram á næsta ár

Hrávöru­skortur og hökt í gáma­flutningum hefur leitt til skorts á ýmsum neyslu­vörum um allan heim. Húsgögn eru þar á meðal, en samkvæmt IKEA mun taka marga mánuði að vinda ofan af yfir­standandi framboðs­truflunum.

Húsgagna­fram­leiðandinn IKEA segir að fyrirtæki muni líklega verða fyrir töfum á afhendingu á vörum sínum fram á næsta ár, þar sem erfitt verður að flytja vörur sem búnar eru til í Kína til Evrópu. Upplýsinga­fulltrúi IKEA á Íslandi segir ástandið hafa verið sveiflu­kennt, en mikil forgangs­röðun hafi átt sér stað til að ganga úr skugga um að mikil­vægustu vörurnar skili sér.

Virðiskeðjan undir álagi

Líkt og frétta­stofa CNN greindi frá fyrr í vikunni er vöru­skortur víða um heim vegna óvenju­mikils álags á alþjóð­legu virðis­keðjunni. Álagið er meðal annars tilkomið vegna skorts á hrávörum, en miklar breytingar í eftir­spurn, ásamt skorti á vöru­bílstjórum og auknum sótt­varnar­ráðstöfunum á landa­mærum hafa einnig leitt til þess að mikið hökt hefur myndast í vöru­flutningum.

Sérfræðingar telja að það muni taka langan tíma að vinda ofan af þessum vanda, en ráðgjafa­fyrirtækið Moody’s Analytics sagði stöðuna munu verða „verri áður en hún verður betri“ í nýlegri greiningu.

Meiri eftirspurn en hökt á framboði

Samkvæmt frétt Reuters frá því í gær hafa IKEA-útibú í Banda­ríkjunum orðið verst úti vegna framboðs­truflananna, en vandamál tengd þeim hafa einnig sprottið upp í útibúum fyrir­tækisins í Evrópu. Þó er mikil eftir­spurn eftir vörum húsgagna­fram­leiðandans, en IKEA hefur aldrei selt jafnmikið og á nýliðnu skattaári. Heildar­verðmæti seldra vara fyrir­tækisins tæpum 42 milljörðum evra á nýliðnu skattaári, eða um 6.300 milljörðum íslenskra króna, samkvæmt frétt sem birtist á vef Nasdaq fyrr í vikunni. Það er meira en tvöföld lands­framleiðsla Íslands.

Jon Abrahamsson, framkvæmda­stjóri Inter IKEA, sem tengir leyfis­hafa á vörumerki IKEA hvers lands við fram­leiðendur, sagði í viðtali við Reuters að hann gerði ráð fyrir að framboðs­truflanir myndu ná fram á næsta ár. Samkvæmt honum er mesti flösku­hálsinn að flytja þær vörur fyrir­tækisins sem eru fram­leiddar í Kína til vestur­landa. Allt að fjórðungur af vörum IKEA eru nú fram­leiddar í landinu.

Sveiflukennt ástand hérlendis

Guðný Camilla Aradóttir, yfirmaður samskipta­deildar IKEA á Íslandi, segir stöðuna í vöru­birgðum verslunarinnar hérlendis hafa verið sveiflu­kennda hingað til í faraldrinum og að stundum komi tímabil þar sem ákveðnar vörur eru ekki fáanlegar. Hins vegar bætir hún því við að fyrir­tækið hafi brugðist við þessum aðstæðum á alþjóða­vísu fyrir mörgum mánuðum síðan með því að forgangs­raða í aðfanga­keðjunni þannig að mikil­vægustu vörurnar skili sér fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár