Stóru lífeyrissjóðirnir hækka vexti á íbúðalánum – Eru enn lægri en hjá bönkunum

Stærstu lífeyris­sjóðirnir sem lána óverðtryggt til sjóðs­félaga sinna hafa tilkynnt um vaxta­hækkanir. Þær eru þó hóflegri en hækkanir sem flestir bankar réðust í og taka ekki gildi fyrr en á næsta ári.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, tilkynnti um vaxtahækkun í síðustu viku.
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, til­kynnti um vaxta­hækkun í síð­ustu viku. Mynd: Kjarninn

Lífeyris­sjóður verzlunarmanna ákvað í síðustu viku að hækka vexti á óverðtryggðum íbúða­lánum sínum um 0,28 prósentu­stig í 4,13 prósent. Um er að ræða lán fyrir 70 prósent af kaupverði sem að hámarki mega vera 75 milljónir króna. Breytingin tekur hins vegar ekki gildi fyrr en 1. febrúar.

Gildi lífeyris­sjóður greindi svo frá því á fimmtudag að stjórn sjóðsins hefði einnig ákveðið að hækka óverðtryggða breyti­lega vexti sjóðs­félagalána sinna en um 0,25 prósent. Breytingin tekur gildi 17. janúar og eftir það verða vextir óverðtryggðra grunnlána fyrir 65 prósent af kaupverði 4,05 prósent en viðbótar­lána fyrir næstu tíu prósentu­stigum kaupverðs 4,80 prósent. Vextir fyrir 75 prósent lán verða eftir breytinguna 4,15 prósent.

Tilefni þessara hækkana er síðasta stýri­vaxtahækkun Seðla­banka Íslands í nóvember, þegar þeir vextir fóru úr 1,5 í tvö prósentu­stig. Stýri­vextir hafa alls hækkað um 1,25 prósentu­stig frá því í maí.

Bankarnir hafa sópað til sín lánum

Viðskipta­bankarnir þrír tilkynntu allir um hækkun á óverðtryggðum vöxtum sínum fyrir síðustu mánaðamót og þær vaxta­hækkanir tóku allar gildi skömmu síðar. Því eru viðskipta­vinir Lands­bankans, Íslands­banka og Arion banka að greiða vaxta­hækkunina fyrr en viðskipta­vinir áður­nefndra lífeyris­sjóða, sem eru tveir af þremur stærstu sjóðum landsins.

­Arion banki og Lands­bank­inn hækk­uðu breyti­lega vexti óverð­tryggðra hús­næð­is­lán um 0,4 og 0,35 pró­sentu­stig, upp í 4,29 og 4,20 prósent.

Íslands­banki var síðastur stóru bankanna til að kynna hækkun, alls um 0,2 prósentu­stig, og óverðtryggðir vextir á sambærilegum lánum við aðra stóra lántakendur hjá bankanum eru nú 4,15 pró­sent hjá Íslands­banka.

Hlut­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020. Á sama tíma hefur vaxta­munur bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka hald­ist svip­aður en hagn­aður þeirra stór­auk­ist. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 60 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021, sem er meira en þeir hafa hagn­ast innan árs frá árinu 2015.

Óverðtryggðu lánin taka yfir

Eftir skarpa stýri­vaxtalækkun Seðla­bankans í fyrravor, sem var viðbragð við kórónu­veiru­faraldrinum þá ákvað bankinn líka að afnema tíma­bundið sveiflu­jöfnunar­auka á eigið fé íslensku bankanna til að auka útlána­getu þeirra.

Fyrir vikið urðu óverðtryggð lán mun hagstæðari en verð­tryggð og eðlis­breyting varð á lántökum lands­manna. Óverðtryggðu lánin er enn mun hagstæðari en þau verð­tryggðu í ljósi þess að verðbólga mælist 4,8 prósent um þessar mundir, en ódýrustu nafn­vextir á slíkum lánum eru nú vel yfir sex prósent.

Hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­sent. Þau bíta lántakendur strax í budduna þegar vextir hækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár