Yfirvöld kæra Facebook fyrir brot á samkeppnislögum

Stærsti samfélags­miðill heimsins liggur nú undir miklum þrýstingi vegna kæru frá samkeppnis­eftirliti Banda­ríkjanna.

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook
Mark Zuckerberg, stofn­andi Facebook Mynd: EPA

Samkeppnis­eftirlit Banda­ríkjanna kærði samfélags­miðilinn Facebook fyrir brot á samkeppnis­lögum þar í landi í gær. Eftir­litið sagðist búast við að miðillinn þyrfti að losa sig við Instagram og WhatsApp.

Samkvæmt frétt frá breska blaðinu Financial Times sakar samkeppnis­eftirlitið Facebook um að hafa stundað „samkeppnis­hamlandi viðskipta­hætti um árabil.“ Þessir viðskipta­hættir fælu meðal annars í sér yfirtökur á öðrum fyrir­tækjum sem ógnuðu markaðs­ráðandi stöðu miðilsins og takmörkun á þjónustu sem gæti nýst öðrum keppinautum.

Eftir­litið nefnir sérstak­lega samfélags­miðlana Instagram og WhatsApp, sem fyrir­tækið keypti árin 2012 og 2014, en samkvæmt Financial Times búast yfirvöld við því að málið endi á því að Facebook losi sig við báða miðlana.

Betra að kaupa en að keppast við

Í kærunni er endur­tekið vísað í tölvu­pósta­samskipti Mark Zuckerberg, forstjóra Facebook, við samstarfs­menn sína. Í einum þeirra sagði hann að það væri „betra að kaupa heldur en að keppast við“ önnur fyrirtæki, en í öðru viðurkenndi hann að samskipta­forritið WhatsApp væri betra en samskipta­hluti Facebook, Messenger, og að það væri ómögulegt að draga úr því forskoti.

Einnig er vísað í aðra tölvu­pósta starfs­manna Facebook eftir stuttu eftir kaupin á WhatsApp, þar sem yfir­tökunni á „hugsanlega eina fyrir­tækinu sem hefði getað orðið næsta Facebook á farsíma“ var fagnað.

Misnota stöðu til að krefjast upplýsinga

Samkvæmt samkeppnis­eftirliti Banda­ríkjanna hefur markaðs­ráðandi staða Facebook komið illa niður á notendum þess, jafnvel þótt þeir þurfi ekki að borga fyrir þjónustuna. Öllu heldur hefði miðillinn notað stöðu sína til að krefjast þess að notendur hans gæfu frá sér fleiri persónu­upplýsingar en þeir hefði annars gert ef meiri samkeppni væri á milli samfélags­miðla.

Bæði kaupin samþykkt á sínum tíma

Facebook sendi frá sér tilkynningu stuttu eftir að ákæran var gerð opinber, en í henni sakar yfir­lögfræðingur fyrir­tækisins, Jennifer Newstead, yfirvöld um að ganga gegn eigin ákvörðunum, þar sem bæði kaupin gegn Instagram og Whatsapp voru samþykkt á sínum tíma.

Newstead segir að vinsældir beggja forrit­anna væru Facebook að þakka. „Þegar Facebook keypti Instagram var heildar­fjöldi notenda þess einungis tvö prósent af því sem hann er í dag, með einungis 13 starfs­menn, engar tekjur og í rauninni enga eigin innviði,“ bætti hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár