22 börn biðu eftir brottflutningi í byrjun júní

Tugir umsækjenda um alþjóð­lega vernd hafa beðið lengur en ár eftir að vera flutt af landi brott eftir að umsóknum þeirra hefur verið hafnað. Tuttugu og tvö börn biðu brott­flutnings í byrjun mánaðar, samkvæmt svari Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra á Alþingi.

Allir mega fara
Allir mega fara Jón dóms­mála­ráð­herra segir í svari sínu að ástæða þess að fólk bíði sé fyrst og fremst þar sem fólkið hefur ekki viljað fara sjálft eftir að umsóknum þeirra um alþjóð­lega vernd hefur verið hafnað. Mynd: Stundin / Davíð Þór

22 börn og 147 full­orðnir biðu þess í byrjun síðasta mánaðar að vera flutt af landinu. Af þeim höfðu 20 börn og 127 full­orðnir sótt um alþjóð­lega vernd en verið hafnað. Sumir þessara einstaklinga hafa beðið lengur en í tvö ár eftir að vera send úr landi en sá sem lengst hefur beðið hefur gert það í meira en fjögur ár. 

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra við fyrir­spurn Arndísar Önnu Kristínar­dóttur Gunnars­dóttur, þingkonu Pírata, sem spurði út í  hversu margir einstaklingar, sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd, bíða flutnings úr landi. 

„...grunn­for­senda þess að ekki tekst að flytja ein­stak­ling úr landi er skortur á sam­vinnu af hálfu við­kom­andi“

Í svarinu ítrekar Jón að „að grunn­forsenda þess að ekki tekst að flytja einstakling úr landi er skortur á samvinnu af hálfu viðkomandi, enda geta allir einstaklingar sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd, að undan­skildum málum á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar, farið sjálf­viljugir af landi brott“.

Ákveði fólk að fara sjálft eftir að óskum þeirra um að vera áfram á Íslandi er hafnað, geti það fengið allt að 3.000 evrur í svokallaðan endur­aðlögunar­styrk. Þeir sem ekki hafa valið að fara sjálf úr landi eftir synjun hafa þurft að bíða vegna ýmissa atriða, svo sem „skilyrði sem ríki setja vegna Covid-19, erfið­leika við að fá útgefin ferða­skilríki fyrir þvingaða flutninga eða vegna þess að ríki hafa beðið um tíma­bundna stöðvun flutninga í fylgd vegna álags í kjölfar stríðs­átakanna í Úkraínu,“ eins og segir í svarinu. 

Flestir þeirra sem bíða brott­flutnings hafa gert það skemur en eitt ár. Þónokkur fjöldi, eða 48, hafa hins vegar beðið lengur en ár en skemur en tvö. 23 einstaklingar hafa beðið lengur en það. Einn hefur svo beðið lengur en í fjögur ár eftir brott­flutningi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • April Summer skrifaði
    Ad senda börn á götuna eru 3x brot á lögunum íslensku,evrópsku,sameinuđu þjóđanna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár